Meirihluti landsmanna vill ekki að ríkið selji Landsbankann
Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 10:40
Höfuðstöðvar Landsbankans. Mynd: Landsbankinn.is
Ný könnun Gallup fyrir Samfylkinguna sýnir að 64,9% landsmanna eru andvíg því að ríkið selji eignarhlut sinn í Landsbankanum, að hluta eða öllu leyti. Aðeins 16,1% eru hlynnt sölu og 19,0% hvorki hlynnt né andvíg.
Rúmlega fjórfalt fleiri eru því andvíg sölu Landsbankans en hlynnt. Þegar skoðuð eru svör þeirra sem tóku afstöðu í aðra hvora áttina kemur í ljós að 80,1% eru á móti sölu og 19,9% með henni. Átta af hverjum tíu sem eru annaðhvort hlynnt eða andvíg sölu vilja því halda eignarhlut ríkisins í bankanum.
Samfylkingin fékk Gallup til að kanna afstöðu almennings í kjölfar umræðu um sölu Landsbankans í framlögðum stefnum og greinum stjórnmálaflokka og -manna. Niðurstöðurnar sýna skýra andstöðu við sölu, þvert á flokkslínur.
Sjá einnig: Vilhjálmur hjólar í hugmynd Ásdísar – „Glórulaust að selja Landsbankann“
Andstaðan nær langt út fyrir Samfylkinguna
Meirihluti þeirra sem eru hlynntir eða andvígir sölu er á móti henni meðal þeirra sem myndu kjósa Samfylkinguna, Vinstri græn, Flokk fólksins, Framsóknarflokkinn, Miðflokkinn og Viðreisn. Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn í birtri flokkaskiptingu þar sem hlynntir eru fleiri en andvígir. Þar munar þó ekki miklu.
Landsbankinn greiddi 34,9 milljarða króna í arð til hluthafa á árinu 2026. Þar af voru um 16,1 milljarður króna sérstök arðgreiðsla. Heildararðgreiðslur bankans frá árinu 2013 nema 245,5 milljörðum króna, samkvæmt upplýsingum bankans.
Íslenska ríkið á 98,6% hlut í Landsbankanum. Eigið fé bankans var 342 milljarðar króna í lok september og eiginfjárhlutfall hans 25%. Það eiginfjárhlutfall er vel yfir lágmarkskröfu fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
Um er að ræða netkönnun sem var gerð dagana 5.–16. nóvember 2026. Úrtakið var 1.980 manns af öllu landinu, 18 ára og eldri. Svarendur voru 845 og þátttaka 42,7%. Gild svör við spurningunni um Landsbankann voru 779.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗