Íslenska kokkalandsliðið hreppir annað gull á HM
Íslenska kokkalandsliðið fékk gull fyrir frammistöðu sína í Chef’s Table á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg. Niðurstaðan var kynnt rétt í þessu. Liðið hafði áður náð gullárangri í heita eldhúsinu, Restaurant of Nations, og hefur því náð gullmörkum í báðum keppnisgreinum.
Gull í einstakri grein þýðir að liðið fékk að minnsta kosti 90 stig af 100 mögulegum. Fleiri en eitt lið geta náð gullmörkum í sömu grein. Samanlögð stig úr báðum greinum, af 200 mögulegum, ráða því hvaða landslið komast á verðlaunapall í heildarkeppninni.
Mynd: Mummi Lú.
Heildarúrslitin verða kynnt á verðlaunahátíð mótsins í Luxexpo-höllinni í Lúxemborg á morgun, fimmtudaginn 26. nóvember, klukkan 14.00 að staðartíma, klukkan 13.00 á Íslandi.
Mynd: Mummi Lú.
Fylgjast má með liðinu á Instagram kokkalandsliðsins og á Facebook Kokkalandsliðsins.
Mynd: Mummi Lú.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗