Mike Garson einn nánasti tónlistarsamstarfsmaður David Bowie á leið til landsins
Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 10:57
Bowie og Garson í stúdíói á áttunda áratugnum. Mynd: Getty.
Bandaríski píanóleikarinn Mike Garson, sem um áratugaskeið var einn nánasti tónlistarsamstarfsmaður David Bowie, kemur til Íslands í febrúar og tekur þátt ítónleikasýningunni David Bowie – 80 ára í Háskólabíói ásamt einvalaliði tónlistarfólks.
Garson stígur á svið ásamt Eyþóri Inga, Diljá Pétursdóttur og Eiríki Haukssyni.
Garson skipar sérstakan sess í tónlistarsögu Bowie. Samstarf þeirra hófst árið 1972 þegar Garson gekk til liðs við hljómsveit hans á Ziggy Stardust-tímabilinu. Hann varð í kjölfarið einn mikilvægasti hljóðfæraleikari Bowie og setti mark sitt á fjölmargar upptökur og tónleika hans næstu áratugina. Garson kom fram með Bowie á um 1.000 tónleikum og var sá hljómsveitarmeðlimur sem starfaði lengst og oftast með honum á tónleikasviðinu.
Meðal þekktustu framlaga Garson er einstakur píanóleikur hans í laginu Aladdin Sane frá árinu 1973, þar sem djassáhrif og frjáls spuni urðu hluti af einum eftirminnilegasta hljóðheimi Bowie. Garson lék einnig á plötum á borð við Diamond Dogs, Young Americans, Outside og Earthling og fylgdi Bowie á fjölmörgum tónleikaferðum.
Arnar Eggert Thoroddsen verður sögumaður kvöldsins og leiðir gesti í gegnum líf og feril Bowie í máli og myndum á milli tónlistaratriða. Þannig fléttast saman tónlist, frásagnir og myndefni sem varpa ljósi á einstakan listamannsferil Bowie og áhrif hans á tónlistarsöguna.
Þátttaka Mike Garson gefur tónleikasýningunni sérstakt vægi og skapar einstakt tækifæri fyrir íslenska tónlistarunnendur til að upplifa tónlist Bowie með einum þeirra tónlistarmanna sem áttu hvað stærstan þátt í að móta hljóðheim hans.
Miðasala hefst fimmtudaginn 26. nóvember kl. 10:00 hjá MIDIX.IS.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗