Senda frá sér yfirlýsingu vegna Musiala og heilsu hans

Bayern Munchen sendi í morgun frá sér yfirlýsingu vegna þeirrar miklu umræðu sem hefur verið um heilsu og framtíð Jamal Musiala hjá félaginu.

Musiala glímir við taugasjúkdóm sem veldur því að hann fær köst í stuttan tíma. Forráðamenn Bayern hafa viðrað þann möguleika undanfarið að leikmaðurinn þurfi að taka á sig launalækkun nái hann ekki fyrri styrk.

Ummælin hafa vakið mikla reiði og hafa alþjóðleg samtök atvinnuknattspyrnumanna, FIFPRO, meðal annars gagnrýnt framgöngu félagsins.

Forráðamenn Bayern funduðu með umboðsmönnum Musiala í gær og segir í yfirlýsingu félagsins að fundurinn hafi verið uppbyggilegur.

„Heilsa leikmannsins er báðum aðilum mikilvægust. Jamal Musiala nýtur fulls stuðnings í endurkomu sinni.“

Þá er tekið fram að Musiala hafi fyrst gengist undir rannsókn vegna einkennanna í apríl árið 2025, tveimur mánuðum eftir að hann skrifaði undir nýjan samning við Bayern til ársins 2030.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab