Tæplega 65% andvíg sölu Landsbankans
Íslenska ríkið á 98,6% hlut í Landsbankanum. Frá árinu 2013 hafa arðgreiðslur bankans numið 245,5 milljörðum króna. mbl.is/Karítas
Nærri tveir af hverjum þremur landsmönnum eru andvígir því að ríkið selji eignarhlut sinn í Landsbankanum, að hluta eða öllu leyti, samkvæmt nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Samfylkinguna.
Alls kváðust 64,9% svarenda andvíg sölu bankans en 16,1% hlynnt henni. Þá voru 19% hvorki hlynnt né andvíg sölu.
Þegar hlutlaus svör eru undanskilin reynast 80,1% andvíg sölu bankans.
Sjálfstæðisflokkurinn sker sig úr
Meðal kjósenda Samfylkingarinnar, Vinstri grænna, Flokks fólksins, Framsóknarflokksins, Miðflokksins og Viðreisnar eru fleiri andvígir sölu bankans en hlynntir.
Þessu er öfugt farið meðal kjósenda Sjálfstæðisflokksins, þótt mjótt sé þar á munum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Samfylkingunni.
Flokkurinn lét gera könnunina í kjölfar umræðu að undanförnu um sölu Landsbankans.
Greitt 245 milljarða í arð
Íslenska ríkið á 98,6% hlut í Landsbankanum, sem greitt hefur hluthöfum sínum alls 34,9 milljarða króna í arð það sem af er ári.
Frá árinu 2013 hafa arðgreiðslur bankans numið 245,5 milljörðum króna.
Eigið fé bankans nam 342 milljörðum króna í lok september og nam hagnaður hans 33,1 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins.
Þátttaka tæp 43%
Könnunin var gerð á netinu dagana 5.-16. nóvember og náði úrtakið til 1.980 manns af öllu landinu, 18 ára og eldri.
Þátttakendur voru 845 talsins og nam svarhlutfallið því 42,7%. Af þeim svöruðu 779 spurningunni um sölu Landsbankans.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗