Engin sátt um veiðar guluggatúnfisks
Þrátt fyrir samningsvilja náðist ekki samkomulag um magn veiða á guluggatúnfiski á nýafstöðnum ársfundi Alþjóðanefndarinnar um verndun túnfisks í Atlantshafi (ICCAT).
Fundurinn fór fram í Vilamoura í Portúgal 16. til 23. þessa mánaðar.
„Enn eitt árið tókst aðildarríkjum ICCAT ekki að ná samkomulagi um skiptingu veiðiheimilda í guluggatúnfiski,“ segir í tilkynningu Bandalags landssamtaka fiskveiðifyrirtækja í Evrópusambandinu (Europêche).
„Heildarafli hefur farið fram úr leyfilegum hámarksafla (TAC) á hverju ári undanfarin tólf ár og vísindanefnd ICCAT (SCRS) hefur ítrekað kallað eftir því að komið verði á kerfi til úthlutunar veiðiheimilda til að binda enda á þessa viðvarandi umframveiði.“
Ungur guluggatúnfiskur. Tegundin er önnur mest veidda túnfisktegundin í Atlantshafi á eftir bláuggatúnfiski, en finnst bara í hlýjum sjó og finnst því ekki við Ísland. Ljósmynd/Flickr.com/Helen
Fram kemur að á næsta ári sé fyrirhugað nýtt stofnmat á guluggatúnfiski og að raunveruleg hætta sé á að draga þurfi úr leyfilegum heildarafla, sem myndi gera framtíðarviðræður um skiptingu veiðiheimilda enn erfiðari.
„Á meðan er sjálfbærni stofnsins til lengri tíma stefnt í hættu, sem og framtíð þeirra sjómanna sem eiga afkomu sína undir honum.“
Þá er gagnrýnt að enn sé í gildi bann við veiðum með fiskasöfnunarbúnaði (FAD, eða Fish Aggregating Device, sem getur átt við um nótaveiðar) á tilteknum tímabilum, sé enn í gildi, þrátt fyrir að ekki hafi verið sýnt fram á ávinning slíks banns fyrir hitabeltistúnfiskstofna.
Xavier Leduc, formaður túnfiskhóps Europêche, segir það valda sérstökum vonbrigðum að ekki hafi tekist að finna lausn þrátt fyrir að nokkrir samningsaðilar, þar á meðal Evrópusambandið, hafi lýst vilja til þess.
„Hver sem ástæðan er hefur enn eitt árið farið forgörðum. Við vonum innilega að á fundi næsta árs náist loks sú málamiðlun sem svo brýn þörf er á,“ segir hann.
Alla tilkynningu Europêche er að finna HÉR.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
