Bestu vinir frá því við vorum litlir

Alfons Sampsted og Willum Þór Willumsson eru góðir vinir.

Alfons Sampsted og Willum Þór Willumsson eru góðir vinir. Eggert Jóhannesson

Þegar Alfons Sampsted skoðaði möguleikann á að ganga til liðs við hollenska knattspyrnufélagið Go Ahead Eagles gat hann leitað til æskuvinar síns, Willums Þórs Willumssonar.

Þeir voru þá liðsfélagar hjá Birmingham en Willum hafði áður leikið með Go Ahead Eagles. Umsögn hans féll vel að því sem Alfons og unnusta hans voru að leita að.

„Hann talaði um að þetta væri frábær fjölskylduklúbbur og við konan áttum von á barni þannig að það tikkaði í eitt box,“ sagði Alfons í samtali við Morgunblaðið.

„Síðan sagði hann að það væri virkilega gaman að spila hérna. Þetta er lítill og þéttur, enskur völlur og góðir stuðningsmenn.“

Alfons þekkti sjálfur hollenska boltann frá dvöl sinni hjá Twente og því hafi verið auðvelt að afla upplýsinga um félagið. Ekki spillti fyrir hversu vel þeir Willum þekktust.

„Við höfum verið bestu vinir frá því við vorum litlir. Við spiluðum í gegnum alla flokkana saman og vorum saman í skóla. Það var ekki erfitt að leita hvor til annars með ráð.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab