Hera rannsakar skemmdirnar
Geimfar frá Geimvísindastofnun Evrópu, ESA, rannsakar nú skemmdir sem urðu á smástirni, fjórum árum eftir að Dart-geimfari bandarísku geimvísindastofnunarinnar, NASA, var vísvitandi brotlent á smástirninu árið 2022 til að breyta stefnu þess.
Dart gjöreyðilagðist við áreksturinn. Leiðangur ESA, sem nefnist Hera, rannsakar nú vettvanginn til að leggja heildarmat á afleiðingar árekstursins. Fyrstu myndirnar verða birtar síðar í dag.
Jörðinni stafar engin ógn af smástirninu, heldur var um að ræða fyrstu prófunina á vörnum okkar til að kanna hvað við gætum gert ef smástirni stefndi á jörðina, að því er BBC greindi frá.
„Eins konar Columbo lögregluforingi“
„Hera er eins konar Columbo lögregluforingi sem snýr aftur á slysstaðinn til að rannsaka hverjar afleiðingar árekstursins urðu,“ sagði Patrick Michel, aðalrannsakandi Hera-leiðangurs ESA.
Árekstrarprófunin beindist að tveimur smástirnum: stærra smástirni sem nefnist Dídýmos, sem er um 730 metrar í þvermál, og minna smástirni sem gengur um það, Dímorfos, sem er um 150 m í þvermál.
Dart-geimfarinu var beint að Dímorfos og skall það á smástirninu á 22.000 km hraða á klukkustund. Myndir sem voru sendar til jarðar sýndu grýtt yfirborð smástirnisins nálgast sífellt þar til útsendingin rofnaði við áreksturinn.
Áreksturinn var svo öflugur að slóð braksins, sem var um 10.000 km löng, sást í sjónaukum á jörðu niðri og úti í geimnum.
Áreksturinn sýndi að hægt var að breyta braut minna smástirnisins.
Fyrir áreksturinn tók það Dímorfos 11 klukkustundir og 55 mínútur að fara einn hring um Dídýmos. Eftir árekstur Dart hafði tíminn styst um 33 mínútur.
Fleiri spurningum svarað
Leiðgangur seinna geimfarsins, Hera, mun hjálpa vísindamönnum að svara mun fleiri spurningum.
„Dart sprakk á smástirninu og því höfum við ekki upplýsingar um endanlegt ástand þess,“ útskýrði Michel.
„Áreksturinn gæti hafa skilið eftir sig gíg og ef svo er þurfum við að átta okkur á stærð hans og dýpt. Eða [áreksturinn] kann að hafa breytt lögun smástirnisins algjörlega.“
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
