Starfandi hjá ríkisstofnunum fjölgað um 218 milli ára en um 1.589 hjá stofnunum sveitarfélaganna

Erla Dóra Magnúsdóttir

Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 10:30

Efnahags- og fjármálaráðuneytið. Mynd: Stjórnarráðið.

Störfum hjá ríki og sveitarfélögum fjölgaði um 1.807 milli ára milli september 2025 og september 2026. Af þessum störfum voru 88% hjá sveitarfélögunum. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðuneytisins við fyrirspurn blaðamanns. 

Störfum í opinberri þjónustu fjölgaði um nærri 2.700, eða um 3,9% milli ára, í september samkvæmt nýjasta hefti Peningamála Seðlabanka Íslands sem kom út fyrir viku síðan.

Samkvæmt Viðskiptablaðinu er þetta mesta fjölgun opinberra starfa í fjögur ár.

DV leitaði svara hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu til að sjá hvernig þessi störf skiptast á milli ríkis og sveitarfélaga en í svari ráðuneytisins kemur fram að fjölgunin sem fjallað er um í Peningamálum byggi á gögnum frá Hagstofu Íslands og á atvinnugreinaflokkun sem nær til opinberrar stjórnsýslu, fræðistarfsemi og heilbrigðis- og félagsþjónustu, óháð því hver rekur starfsemina. Þar með geta fallið þar undir störf hjá einkafyrirtækjum, sjálfseignarstofnunum og félagasamtökum. 

Séu gögn Hagstofunnar flokkuð eftir rekstrarformi kemur fram að milli september 2025 og september 2026 fjölgaði starfandi hjá ríkisstofnunum um 218, eða 0,9%. Hjá stofnunum sveitarfélaga nam fjölgunin um 1.589 eða 5,2%.

„Samanlagt er fjölgunin 1.807, þar af um 88% hjá sveitarfélögum. Þá sýna gögnin fjölda starfandi einstaklinga samkvæmt staðgreiðslugögnum, en ekki stöðugildi eða ársverk. Vert er að benda á að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Nýjar tölur gætu því tekið breytingum í næstu uppfærslum.“

Samkvæmt nýlegri tilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytis má rekja um 93% fjölgunar stöðugilda hjá ríkinu frá 2019 til 2025 til heilbrigðisþjónustu, öryggisþjónustu og kennslutengdra starfa. Heilbrigðisþjónusta skýrir ein og sér um 72% fjölgunarinnar.

DV spurði hvernig fjölgun starfa samræmist aðhaldsstefnu ráðherra og hvort stefnt væri að frekari fjölgun starfa á næsta ári. Ráðuneytið segir í svari sínu: 

„Fjölgunin milli septembermánaða gefur ekki til kynna almenna eða mikla fjölgun ríkisstarfsmanna. Aðhald í ríkisfjármálum felur heldur ekki í sér algert ráðningarbann. Fjölgun starfa getur orðið í lögbundnum verkefnum eða grunnþjónustu samhliða fækkun og hagræðingu annars staðar. Í fjárlagafrumvarpi 2027 er gert ráð fyrir 1% fækkun stöðugilda hjá ríkinu, eða um 200 stöðugildum, sem áætlað er að skili um 3,2 ma.kr. sparnaði. Fækkunin þarf ekki að verða hlutfallslega sú sama hjá öllum stofnunum og áfram getur þurft að fjölga starfsfólki í afmörkuðum verkefnum samhliða meiri fækkun annars staðar.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab