Þetta eru sameignar- og samlagsfélög lækna sem græddu mest á Íslandi í fyrra

Viðskiptablaðið hefur tekið saman upplýsingar um starfsemi fjölmargra samlags- og sameignarfélaga sem greiddu mikinn tekjuskatt í fyrra og reiknað út hagnað og launagreiðslur þeirra fyrir árið 2025. 

Útreikningarnir eru birtir í blaðinu í dag en þar má meðal annars finna lista yfir þau sameignar- og samlagsfélög lækna sem högnuðust mest í fyrra. 

Í fyrsta sæti er Röntgen sf. Eigandi þess er Magnús Baldvinsson röntgenlæknir.

Hagnaður: 141 milljón króna

Launagreiðslur: 16 milljónir króna

Í öðru sæti er Vitros slf., eigandi þess er Óskar Jónsson augnlæknir.

Hagnaður: 126 milljónir króna

Launagreiðslur: 27 milljónir króna

Í þriðja sæti er IceMed á Íslandi slf., eigandi þess er Ottó Guðjónsson lýtalæknir. 

Hagnaður: 87 milljónir króna

Launagreiðslur: 33 milljónir króna

Í fjórða sæti er SEM lækningar slf., eigandi þess er Stefán E. Matthíasson skurðlæknir og æðaskurðlæknir.

Hagnaður: 77 milljónir króna

Launagreiðslur: 29 milljónir króna

Í fimmta sæti er Orbis slf., eigandi þess er Ólafur Már Björnsson augnlæknir.

Hagnaður: 74 milljónir króna

Launagreiðslur: 28 milljónir króna

Í sjötta sæti er Greppikló slf., eigandi þess er Guðmundur Örn Guðmundsson bæklunarskurðlæknir. Vekur athygli að í atvinnugreinaflokkun félagsins hjá Skattinum er félagið ekki einungis flokkað sem að sinna sérfræðilækningum heldur einnig listsköpun. 

Hagnaður: 73 milljónir króna

Launagreiðslur: 28 milljónir króna

Í sjöunda sæti er Sveif slf., eigandi þess er Björn Pétur Sigurðsson bæklunar- og handaskurðlæknir.

Hagnaður: 70 milljónir króna

Launagreiðslur: 16 milljónir króna

Í áttunda sæti er Læknastofur Reykjavíkur slf., eigandi þess er Ágúst Birgisson lýtalæknir.

Hagnaður: 69 milljónir króna

Launagreiðslur: 65 milljónir króna

Í níunda sæti er ÍsCor slf., eigandi þess er Steinar Guðmundsson hjartalæknir. 

Hagnaður: 67 milljónir króna

Launagreiðslur: 13 milljónir króna

Í tíunda sæti er Bæklunarlækningar Ö.V. slf., eigandi þess er Örnólfur Valdimarsson bæklunarskurðlæknir. 

Hagnaður: 63 milljónir króna

Launagreiðslur: 20 milljónir króna

Ræddi um hvað væri eðlilegur hagnaður heilbrigðisfyrirtækja

Magnús Baldvinsson sem er í fyrsta sæti á listanum hefur um árabil verið með mikinn hagnað og ræddi hann um hagnaðinn í viðtali við Heimildina árið 2021 og þá gagnrýni sem hafði komið fram um að fyrirtæki sem veiti heilbrigðisþjónustu fyrir opinbert fé séu rekin með miklum hagnaði.

„Það eru mörg fyrirtæki sem starfa við það að veita ríkinu þjónustu. Það geta verið lyfjafyrirtæki, aðilar sem flytja inn allskyns heilbrigðisvörur, það geta verið aðilar sem malbika vegi fyrir ríkið, en þessi umræða á sér aldrei stað þar,“ sagði Magnús, jafnframt hafi enginn sagt hver væri eðlileg arðsemi af einkareknu heilbrigðisfyrirtæki. 

„Maður hefur orðið var við þessa umræðu undanfarin misseri, að fólk sjái ofsjónir yfir því að það skuli ganga vel hér, en malbikunarfyrirtæki má vinna fyrir ríkið og græða milljónir og einhver lyfjafyrirtæki mega græða hundruð milljóna; það er er fjármagnað á sambærilegan hátt, það er að segja af ríkinu. Apótek mega græða, en við megum það ekki og mér finnst vanta að útskýra hver munurinn er þarna þegar er verið að gagnrýna.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab