Eftirlitið hlutverk ráðuneytisins

Daði Már Kristófersson telur misbresti ekki hafa verið á vali á tilboði vegna þjóðarhallar og að ÍAV hafi uppfyllt fjárhagsleg skilyrði. mbl.is/Karítas

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, telur ekki tilefni á þessu stigi til sérstakrar athugunar á því hvernig staðið var að útboði á byggingu Þjóðarhallar. Hann kveðst þó vilja kynna sér málið betur áður en hann tjáir sig nánar um málið en hann segir að eftirlitið sé og verði hlutverk ráðuneytisins.

Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær bauð ÍAV 557 milljónum króna meira en Ístak í hönnun og byggingu Þjóðarhallar en innan við hálft stig skildi fyrirtækin að í heildarmati á tilboðum þeirra.

Eigið fé ÍAV var neikvætt um meira en tvo milljarða króna þegar tilboði fyrirtækisins var tekið í júní, en í útboðinu var gerð krafa um að bjóðendur væru með að minnsta kosti 10% jákvætt eiginfjárhlutfall. Eigandi ÍAV gaf eftir 3.300 milljóna króna skuld félagsins 30. júní, 15 dögum eftir að tilkynnt var að tilboði þess hefði verið tekið.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab