Ráðleggja íbúum að vera innandyra

Gert er ráð fyrir að blýasíðið verði sprengt klukkan 15 í dag. AFP/Scott Olson

Bandaríkjaher stefnir að því að sprengja í loft upp um 4,5 tonn af blýasíði í dag, en efnið var eitt sinn notað til að framleiða hvellhettur fyrir sprengiefni og skotfæri.

Blýasíð er ekki lengur notað í þeim tilgangi, og er um að ræða gamlar birgðir Bandaríkjahers af efninu. Hefur það verið geymt í skotfæraverksmiðju hersins í Iowa. Er það hins vegar orðið gamalt og óstöðugt, og er talin hætta á því að blýasíðið geti sprungið af sjálfu sér.

Til stóð að sprengja birgðirnar upp fyrir helgi, en því var frestað um þrjá daga þar sem áhyggjur höfðu komið upp um að sprengingin myndi valda blýeitrun á nærsvæðum. Ákvað Trump Bandaríkjaforseti því að fresta aðgerðinni þar til dómstólar og nýkjörinn ríkisstjóri Iowa-ríkis, Rob Sand, hefðu lagt blessun sína yfir hana.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab