„Of erfið, kröfuhörð og snobbuð“

Tinna Dögg Gunnarsdóttir.

Tinna Dögg Gunnarsdóttir.

Markþjálfinn Tinna Dögg Gunnarsdóttir skrifar um tvö atvik sem hún varð fyrir í miðbæ Reykjavíkur þar sem karlar fóru yfir strikið. Getur verið að fólk þroskist ekki neitt með aldrinum? 


Fólk getur verið fífl. Eða réttara sagt, sumir virðast kjósa að gera dónaskap að sínum helstu persónuleikaeinkennum. Ég fer sjaldan niður í miðbæ að kvöldi til og get ekki sagt að ég stundi næturlíf borgarinnar. Ég fór þó tvisvar í röð niður í miðbæ að næturlagi og fór í framhaldinu að velta fyrir mér framkomu, virðingu og tilfinningalegum þroska. 

Í bæði skiptin settust ókunnugir menn hjá mér og töldu sig greinilega hafa fullt umboð til að leggja mat á útlit mitt, persónuleika, kynlíf og einkalíf. Annar taldi mig vera týpuna sem hefði lagt aðra í einelti í grunnskóla, líkti mér við vondu kynþokkafullu klappstýruna úr bandarískri unglingamynd og virtist sannfærður um að þetta væri einhver stórkostleg hrós.

Hinn byrjaði á að kalla mig stífa, fína frú, kassalaga og góða með mig. Í framhaldinu upplýsti hann mig um að ég hefði greinilega ekki fengið almennilegt kynlíf í langan tíma og bauðst til að bæta úr því. Hann hafði svo auðvitað líka skýringar á því hvers vegna ég væri fráskilin og ekki komin með nýjan mann. Ég væri einfaldlega of erfið, kröfuhörð og snobbuð.

Það sem þessir menn áttu sameiginlegt var að þeir þekktu mig ekki neitt, en virtust samt hafa ótrúlega þörf fyrir að skilgreina mig. Sjálfstraustið var greinilega mikið, en dómgreindin eitthvað minna áberandi.

Þetta fékk mig til að hugsa, hvenær varð eðlilegt að rugla saman dónaskap og sjálfstrausti?
Hvenær varð það ásættanlegt að niðurlægja aðra undir yfirskini húmors eða daðurs?
Og hvers vegna telja sumir sig hafa rétt til að gera athugasemdir við líkama, kynlíf og einkalíf fólks sem þeir hafa aldrei áður hitt?

Það er nefnilega ákveðinn munur á því að vera hreinskilinn og því að vera dónalegur. Munur á
sjálfstrausti og hroka. Munur á daðri og kynferðislegri vanvirðingu.

Að vera komin á miðjan aldur þýðir ekki sjálfkrafa að maður hafi þroskast. Aldur tryggir ekki
sjálfþekkingu, tilfinningagreind eða hæfni í mannlegum samskiptum. Það er nefnilega hægt að eldast án þess að þroskast nokkuð að ráði.

Það er auðvelt að benda á galla annarra, setja fólk í flokka og fella dóma eftir örfáar mínútur. Það krefst hins vegar meiri þroska að sýna virðingu, kunna mörk og átta sig á því að maður hefur ekki alltaf eitthvað fram að færa.

Við skulum líka hætta að kalla svona hegðun hreinskilni, húmor eða karakter. Dónaskapur verður ekki sjarmerandi þótt honum sé pakkað inn í sjálfstraust. Og óumbeðnar kynferðislegar athugasemdir verða ekki daður þótt sá sem lætur þær falla sé sjálfur sannfærður um annað.

Ég viðurkenni alveg að mér tókst að leyfa þessum samskiptum að hafa áhrif á mig og skemma hluta af kvöldinu. En eftir á áttaði ég mig á því að ég hefði í raun gefið ókunnugu fólki of mikið vald yfir minni eigin líðan.

Ég þarf ekki að útskýra mig, verja mig eða sanna eigið virði fyrir fólki sem að þekkir mig ekki. Ég þarf ekki að taka inn á mig skoðanir annarra og alls ekki taka þátt í samtölum þar sem virðing er ekki til staðar.

Við berum öll ábyrgð á því hvernig við komum fram við annað fólk. Við vitum aldrei hvað fólk hefur gengið í gegnum, hvaða reynslu það ber með sér eða hvaða baráttu það stendur í. En það ætti heldur ekki að þekkja sögu annara til að sýna þeim lágmarksvirðingu.

Kannski væri ágætt að við gefum aðeins minni tíma í að greina, dæma og skilgreina annað fólk og aðeins meiri tíma í að líta í eigin barm. Því þegar allt kemur til alls segir framkoma okkar við aðra oft miklu meira um okkur sjálf en fólkið sem við teljum okkur vera að lýsa.

Það er ekkert sérstaklega heillandi við fólk sem þarf að gera lítið úr öðrum til að upphefja sjálft sig. Stór munnur er ekki merki um sterkan persónuleika, dónaskapur er ekki sjálfstraust og aldur er svo sannarlega ekki trygging fyrir þroska. Það þarf nefnilega engan sérstakan styrk til að særa, niðurlægja eða gera lítið úr öðrum. Hinn raunverulegi styrkur felst í því að kunna að sýna virðingu, jafnvel þegar maður hefur ekkert að græða á því.

Manneskja sem veit raunverulega hvers virði hún er þarf ekki að gera lítið úr öðrum til þess að standa sjálf hærra. Hugsum áður en við tölum, verum góð hvert við annað og sýnum virðingu, það er ekki flókið.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab