Vissi Liverpool það sem við erum að sjá núna?

Liverpool réð Andoni Iraola frekar en Xabi Alonso.

Liverpool réð Andoni Iraola frekar en Xabi Alonso. AFP/Paul Ellis

Paul Merson, fyrrverandi leikmaður Arsenal og sérfræðingur hjá Sky Sports, setti spurningarmerki við Xabi Alonso, knattspyrnustjóra Chelsea, eftir 4:1-tap liðsins gegn Leeds á heimavelli á laugardag.

„Augljóslega fannst Liverpool hann ekki nógu góður,“ skrifaði Merson. „Vissi Liverpool eitthvað sem við erum að sjá núna?“

Alonso samþykkti að taka við Chelsea 17. maí, tveimur vikum áður en Liverpool rak Arne Slot.

Merson hélt því fram að Liverpool hefði getað leitað til fyrrverandi miðjumanns síns áður en hann þáði tilboð Chelsea.

Chelsea hefur aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum í öllum keppnum. Merson gagnrýndi einnig varnarmistök liðsins og gaf í skyn að fyrri velgengni Alonso hjá Bayer Leverkusen hlífði honum við meiri pressu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab