Tjáði sig um óblíðar móttökur um síðustu helgi
Bruno Guimaraes, leikmaður Arsenal, ræddi baul stuðningsmanna Newcastle í hans garð í 2-2 jafntefli liðanna um helgina.
Brasilíumaðurinn sneri þar aftur á St James' Park í fyrsta sinn síðan hann gekk í raðir Arsenal fyrir 75 milljónir punda í sumar.
Guimaraes var í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Newcastle á þeim fimm tímabilum sem hann var hjá félaginu. Hann var fyrirliði liðsins þegar það vann enska deildabikarinn árið 2025.
Stuðningsmenn Newcastle bauluðu hins vegar á miðjumanninn í hvert sinn sem hann snerti boltann á laugardag.
„Ég get ekki stjórnað stuðningsmönnum Newcastle. Þeir mega gera það sem þeir vilja. Það eina sem þeir geta ekki gert er að afmá sögu mína hjá félaginu,“ sagði Guimaraes.
Hann kvaðst á sama tíma afar þakklátur fyrir þær góðu móttökur sem hann hefur fengið hjá stuðningsmönnum Arsenal.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗