Aðsend grein: Læknafulltrúar gætu eflt íslenska heilbrigðisþjónustu
Aðsend grein úr Morgunblaðinu:
Mönnunarvandi heilbrigðiskerfisins er enn á ný í brennidepli. Umræðan snýst um tvö samofin verkefni: að tryggja nægilega margt heilbrigðisstarfsfólk og að skipuleggja störf þess betur. Við þurfum að bæta starfsskilyrði, efla menntun og halda betur í reynslumikið starfsfólk. En við getum líka skoðað nýjar leiðir. Ein þeirra væri að koma á fót nýrri heilbrigðisstétt að fyrirmynd þeirrar sem á ensku nefnist physician assistant (PA), sem kalla mætti læknafulltrúa á íslensku.
Góð reynsla af samstarfi
Á starfsárum mínum í Bandaríkjunum vann ég náið með læknafulltrúum og reynslan af því samstarfi var virkilega góð. Samkvæmt bandarísku vottunarstofnuninni NCCPA fjölgaði læknafulltrúum úr 109.000 í árslok 2015 í 201.000 í árslok 2025. Þessi þróun gefur tilefni til að kanna hvort stéttin gæti orðið gagnleg viðbót við íslensk heilbrigðisteymi.
Hvað gera læknafulltrúar?
Í Bandaríkjunum er PA-nám um 27 mánaða meistaranám að loknu grunnnámi. Það felur í sér bóklegt nám og meira en 2.000 klukkustunda klíníska þjálfun. Að námi loknu þarf að standast vottunarpróf og fá starfsleyfi.
Starfssviðið er vítt. Læknafulltrúar taka sjúkrasögu, skoða sjúklinga, greina og meðhöndla sjúkdóma, panta rannsóknir og túlka niðurstöður. Þeir gera meðferðaráætlanir, sinna eftirfylgd og veita ráðgjöf um forvarnir. Þeir framkvæma einnig tiltekin inngrip og aðstoða við skurðaðgerðir. Læknafulltrúar mega ávísa lyfjum, en skilyrði og takmarkanir eru mismunandi eftir ríkjum. Sama gildir um kröfur um samstarf við lækni og handleiðslu. Verkefnin ráðast því af lögum, menntun, reynslu og þeim heimildum sem hver og einn hefur á sínum vinnustað.
Læknafulltrúi yrði sjálfstæð heilbrigðisstétt með eigin menntun og skilgreinda ábyrgð. Námið er styttra en læknanám og verkaskiptingin þarf að endurspegla þann mun. Flókin tilvik og verkefni sem eru umfram hæfni viðkomandi eiga að koma til kasta læknis.
Reynsla víðar en í Bandaríkjunum
Sambærileg stétt starfar einnig í Kanada, Hollandi, Þýskalandi og Bretlandi. Í Kanada starfa læknafulltrúar í heilbrigðisteymum undir handleiðslu læknis en með sjálfstæði innan skilgreinds starfssviðs. Í Hollandi mega þeir greina, meðhöndla, ávísa lyfjum og framkvæma tiltekin inngrip sjálfstætt, innan þess ramma sem menntun þeirra, hæfni og samkomulag um starfssvið setja. Í Þýskalandi fela læknar læknafulltrúum afmörkuð læknisverk, og þýsku læknasamtökin lýstu stéttinni árið 2025 sem starfsgrein sem hefði fest sig í sessi í þýsku heilbrigðiskerfi.
Hvernig gæti þetta nýst á Íslandi?
Í skurðlækningum mætti hugsa sér læknafulltrúa sem fastan liðsmann í teymi. Hann gæti undirbúið sjúklinga fyrir aðgerð, aðstoðað á skurðstofu, fylgst með sjúklingum á legudeild og sinnt eftirfylgd eftir útskrift.
Í heilsugæslu mætti kanna hlutverk við eftirfylgd þekktra sjúkdóma og önnur vel skilgreind verkefni. Slíka þjónustu þyrfti að greina skýrt frá mati á nýjum, óljósum eða flóknum einkennum, þar sem reynir á víðtæka læknisfræðilega þekkingu. Verkaskipting af þessu tagi gæti gefið læknum meira svigrúm til að sinna flóknum greiningum, ákvörðunum um meðferð og aðgerðum. Sjúklingar njóta greiðara aðgengis, betri samfellu og meiri tíma til samtals.
Læknafulltrúar leysa ekki skort á hjúkrunarfræðingum. Innleiðing þeirra ætti að haldast í hendur við þróun starfssviðs annarra heilbrigðisstétta. Við þurfum áfram að efla hjúkrun og nýta betur sérþekkingu allra sem starfa í heilbrigðisþjónustunni.
Öryggi og skýr ábyrgð
Læknafulltrúar eru ekki læknar. Sjúklingar eiga að vita hvaða stétt sinnir þeim og hvernig læknir kemur að þjónustunni. Í íslensku fyrirkomulagi myndi ég leggja áherslu á afmörkuð verkefni, nafngreindan lækni sem ber ábyrgð á handleiðslunni og greiðir boðleiðir þegar vafi kemur upp. Einnig þarf að gæta þess að námstækifæri læknanema og sérnámslækna skerðist ekki.
Byrjum smátt
Ég legg til að heilbrigðisráðuneytið, heilbrigðisstofnanir, háskólar og fagfélög undirbúi tilraunaverkefni um læknafulltrúa á Íslandi. Fyrst þarf að móta lagaramma um menntun, starfsleyfi og ábyrgð. Þá mætti ráða fámennan hóp reyndra læknafulltrúa með viðurkennda erlenda menntun til starfa í skilgreindum teymum. Tryggja þyrfti íslenskukunnáttu, aðlögun að íslensku heilbrigðiskerfi og viðeigandi handleiðslu. Meta ætti öryggi sjúklinga, biðtíma, samfellu í þjónustu, reynslu sjúklinga og starfsfólks og heildarkostnað. Samhliða mætti kanna samstarf við erlenda háskóla um menntun Íslendinga til þessara starfa.
Þessi leið fellur vel að aðgerðaáætlun heilbrigðisráðuneytisins um mönnun heilbrigðisþjónustu 2026-2027, þar sem þverfagleg teymisvinna, verkaskipting og tilfærsla verkefna eru meðal áhersluatriða. Mönnunarvandinn kallar á fleiri en eina lausn. Ég tel að læknafulltrúar gætu orðið verðmæt viðbót við íslensk heilbrigðisteymi. Það er tímabært að kanna þann möguleika, með vönduðum undirbúningi og hagsmuni sjúklinga að leiðarljósi.
Jón Ívar Einarsson, læknir.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗