Freyr tjáði sig: Nei, nei, nei!

Freyr Alexandersson

Freyr Alexandersson AFP/Piero CRUCIATTI

Freyr Alexandersson, þjálfari karlaliðs Rosenborgar í fótbolta, vísaði því á bug að hann væri hættur hjá norska félaginu þegar hann mætti til vinnu á Lerkendal-æfingasvæðið í morgun.

Hann hefur verið orðaður við stjórastarfið hjá Swansea í Wales og er afar líklegur til að taka við.

„Nei, nei, nei! Nú ætlum við að fá okkur morgunmat og svo er æfing á eftir. Ég er alls ekki hættur neinu,“ sagði Freyr við TV2.

Sky Sports greindi frá því í gær að Swansea hefði boðið Frey starfið. Spurður út í þær fréttir svaraði hann: „Við skoðum það seinna í dag.“

Swansea er í áttunda sæti ensku B-deildarinnar og berst um sæti í úrvalsdeildinni. Rosenborg á hins vegar mikilvægan leik gegn Molde á laugardag í baráttunni um Evrópusæti í Noregi.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab