Strákarnir úti að slást
„Gefendr heilir!/Gestr er inn kominn!“ Hver kannast ekki við þessar línur úr Gestaþætti Hávamála? En hvar á gesturinn að sitja? Dr. Jón Viðar skoðar samfélagsmynd Hávamála í nýrri bók sinni. Ljósmynd/Agnete Brun
„Ég mun gera grein fyrir þessari bók og um leið hver mín nálgun er þegar kemur að Hávamálum,“ segir dr. Jón Viðar Sigurðsson, prófessor í miðaldasagnfræði við Háskólann í Ósló, í samtali við Morgunblaðið, kominn til landsins úr ranni frændþjóðarinnar og heldur klukkan 12.00 í dag fyrirlestur í Eddu um nýútkomna bók sína, Håvamål – en nøkkel til vikingtiden, eða Hávamál – lykillinn að víkingaöld.
Fyrirlesturinn í dag, sem hann mun einnig flytja á ensku í herbergi 75 í Sögu klukkan 16.30 á morgun, ber yfirskriftina „Hávamál – lykill að heimi víkingaaldar“.
Jón Viðar á að baki rúma fjóra áratugi í Noregi, hefur verið búsettur þar frá 1984 og verið við Óslóarskólann síðan 1995.
„Ég reyni að nota Hávamál til þess að athuga hvers konar samfélagi Óðinn er eiginlega að lýsa þarna með höfundinum og þá er einfaldast að taka dæmi. Í öðru erindi ljóðsins gefur Óðinn gestgjöfum ráð. Þar segir „gefendur heilir, gestur er inn kominn. Hvar skal sitja sá?“ Erindið er ótrúlega forvitnilegt og má túlka á marga vegu, í fljótu bragði virðist Óðinn vera að leiðbeina um hvar í skála skuli veita gesti sæti,“ segir prófessorinn.
Snýst um annað og meira en sæti
Vissulega ristir raunveruleg merking annars erindis Hávamála þó mun dýpra en svo að þar sé verið að benda á hvar setja skuli gesti til borðs í veislu.
„Þetta snýst samt um sætaskipan vegna þess að þegar þú gengur inn í miðaldaskála sérðu samfélagsgerðina,“ útskýrir Jón Viðar, „höfðinginn situr þar væntanlega í öndvegi í hásæti sínu, næst honum situr sá sem næstmestrar virðingar nýtur og svo koll af kolli. Sá, sem lægstu samfélagsstöðuna hefur, situr svo lengst frá hásætinu.“
Bókarkápa dr. Jóns Viðars ber fornan blæ, enda Hávamál, heilræði Óðins, forn þótt merkilega vel hafi þau staðist hina kunnu tönn tímans. Skjáskot/Kagge forlag
Nefnir Jón Viðar dæmi af því þegar Sigtryggur Dyflinnarkonungur kom óvænt til Orkneyja árið 1014 og sagt er frá í Njálu. „Þá var mikil veisla haldin og hásætin voru stór. Konungur var settur í miðju hásætisins og svo tveir jarlar við hlið hans, Orkneyjajarlinn, sjálfur gestgjafinn, til annarrar handar og Suðureyjajarlinn, sem var í heimsókn, til hinnar. Þannig að gestgjafinn þurfti að víkja úr sínu sæti og gefa konungi það eftir,“ segir Jón Viðar.
„Hverra manna ert þú?“
Þannig hafi ekki farið milli mála hver talinn var höfðingja mestur í skálanum í frásögn Njálu af Sigtryggi konungi. Þar skákaði konungstign vissulega jarlstign. „Þetta lýsir samfélagsgerðinni á þessum tíma í hnotskurn, því sem raunverulega er verið að lýsa. Þetta er auðvelt þegar gestgjafinn þekkir gestinn, en annað mál þegar einhver kemur inn sem gestgjafinn þekkir ekki. Hvernig á gestgjafinn þá að fara að? Hann náttúrulega spyr þessarar spurningar sem við Íslendingar þekkjum mætavel, hverra manna ert þú?“ segir Jón Viðar af þessari rannsókn húsráðanda á hinum gestkomandi.
Spurningin sú hafi fylgt okkur frá örófi alda. „Þegar búið er að átta sig á því hverra manna einstaklingurinn er má vísa honum á sinn stað í skálanum,“ heldur hann áfram og kemur að vandamáli þessu tengdu.
„Stundum fór samfélagsstaða ekki saman við hugmyndir gestgjafa og gestvirðingu þeirra, til dæmis í brúðkaupi Kjartans og Hrefnu í Laxdælu, þegar Guðrún var ekki mjög sátt við að fá ekki að sitja aðalssæti kvenna í veislunni.“
„Mér finnst einnig mjög athyglisverð sú áhersla sem Hávamál leggja á að tala um tilfinningar sínar og fela þær ekki,“ segir Jón Viðar.
Voru víkingarnir þá ekki naglar?
Þetta stangist á við hugmyndir okkar um víkingana sem mikil karlmenni er fátt hafi vílað fyrir sér. „Fjöldi vísna í Hávamálum fjallar um ást, kærleika og vináttu. Þegar maður fer að greina þetta verk fær maður dálítið aðra hugmynd en maður er með í kollinum. Hávamál skiptast í fimm þætti, Gestaþátt, Billingsmey og Gunnlöðu, Loddfáfnismál, Rúnatal og Ljóðatal. Samt er það alltaf fyrst og fremst Gestaþáttur sem við höfum í huga þegar við tölum um Hávamál,“ heldur hann áfram.
Prófessorinn í Ósló hagræðir gleraugum sínum og sér enda ýmislegt. Hvaða samfélagsmynd sýna Hávamál okkur og hefur sú samfélagsmynd ekki komið fram aftur og aftur, tímar þegar heimilið og saltið í grautinn var í höndum kvenna á meðan strákarnir voru úti að slást? Ljósmynd/Agnete Brun
Þegar farið sé að rýna í fjóra seinni þættina komi upp önnur mynd af kvæðinu en Gestaþáttur sýni. „Það var dálítið skemmtileg uppgötvun að sjá þessa áherslu á tilfinningar og kærleika. Við verðum að hafa það hugfast að þarna er samfélag víkingaaldar dregið upp, tugir þúsunda karlmanna eru erlendis og fyrst og fremst í víking á hverju ári. Margir þeirra deyja, koma ekki aftur eða koma aftur með mikil örkuml. Það bitnar því á konunum að halda hjólunum gangandi,“ nefnir Jón Viðar og nefnir einnig síðari heimsstyrjöldina á Englandi.
„Þá voru strákarnir úti að slást og konurnar sáu um allt, unnu í verksmiðjum og á skrifstofum. Það er bara sex ára tímabil, en víkingaöldin er 250 til 300 ár. Það fer ekkert milli mála að þetta hefur gefið konum aukið svigrými sem þær svo missa þegar komið er fram á há- og síðmiðaldir,“ segir dr. Jón Viðar Sigurðsson, prófessor í Ósló, að lokum.
Allt þetta og mun meira gerir hann að yrkisefni sínu í fyrirlestrunum í dag og á morgun í Eddu og Sögu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

