Varað við hvössum vindstrengjum

Innlent | mbl | 25.11.2026 | 9:28

Vindakort Veðurstofunnar klukkan 16 í dag.

Vindakort Veðurstofunnar klukkan 16 í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Veðurstofan varar við hvössum vindstrengjum á suðvestanverðu landinu síðdegis, t.d. undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli.

Aðstæður geta orðið varasamar fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi að því er fram kemur í ábendingu veðurfræðings.

Á morgun nálgast djúp lægð úr suðri. Þá gengur í suðaustan- og austanhvassviðri eða storm með vætusömu veðri og á Suðaustur- og Austurlandi má búast við úrhellisrigningu. Á vesturhluta landsins fer þó ekki að hvessa að ráði fyrr en líður á seinnipartinn.

Veðurvefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab