Nýkrýnd Miss Universe er móðir og Sigga Ózk ekki í topp 30

Jennifer Barreto er falleg kona en hún var valin Miss Universe. AFP/JAYDEE LEE

Jennifer Barreto frá Púerto Ríkó braut blað í sögu Miss Universe þegar hún var krýnd fallegust í heimi í nótt. Barreto er fyrsta móðirin sem hlýtur titilinn. 

116 konur tóku þátt í keppninni að þessu sinni sem fór fram San Juan í Púorto Ríkó. Söngkonan Sigga Ózk var fulltrúi Íslands en hún hlaut titilinn ungfrú Ísland í vor. Sigga Ózk komst ekki í topp 30 í nótt. 

Sigga Ózk var valin ungfrú Ísland.

Sigga Ózk var valin ungfrú Ísland.

Banni aflétt

Barreto er 27 ára sálfræðingur og starfar við félagsráðgjöf. Hún er einnig gift og á dóttur. Hún er sögð vera fyrsta móðirin og fyrsta gifta konan sem hlýtur titilinn Miss Universe. Fyrir nokkrum árum ákvað keppnin að aflétta reglu sem kom í veg fyrir að konur sem hafa gengið í hjónaband eða eignast börn gætu tekið þátt í keppninni. 

Í gærkvöldi kom í ljós hvaða keppendur komust í topp 30, svo topp 12 og svo topp fimm. Í efstu sætunum fimm voru keppendur frá Filippseyjum, Nýja-Sjálandi, Venesúela, Dóminíska lýðveldinu auk sigurvegarans frá Púertó Ríkó. 

Hér má sjá konurnar í topp fimm í Miss Universe.

Hér má sjá konurnar í topp fimm í Miss Universe. AFP/JAYDEE LEE

Keppnin er umdeild

Miss Universe er umdeild í dag og vakna yfirleitt spurningar af hverju konur ganga um í sundfatanaði. Einnig áttu keppendur í vandræðum með að fá að vegabréfsáritanir og þurftu að draga sig úr keppni. Á undanförnum árum hafa skipuleggjendur einnig verið sakaðir um kosningasvindl og halda upp á ákveðin lönd. 

Jennifer Barreto frá Púertó Ríkó va ánægð þegar hún var valin Miss Universe. AFP/JAYDEE LEE

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab