Gætu fengið Grealish aftur næsta sumar
Aston Villa hefur áhuga á að fá Jack Grealish aftur í sínar raðir. Football Insider greinir frá.
Grealish er á öðru tímabili sínu í láni hjá Everton frá Manchester City. Útlit var fyrir að Everton myndi kaupa leikmanninn en það er nú óvíst vegna agabrota hans á dögunum.
Grealish, sem er 31 árs gamall, er einnig á blaði hjá félögum utan Englands en hann vill helst halda áfram að spila í ensku úrvalsdeildinni.
Samningur hans við City rennur út næsta sumar og gæti Villa því fengið hann frítt. Grealish var fyrirliði Villa áður en hann var seldur til City fyrir 100 milljónir punda sumarið 2021.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗