Vill vinna gegn hundarasisma: „Manneskjan er miklu grimmari“
Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, vill vinna gegn hundarasisma hérlendis. Í pistli sínum í Morgunblaðinu segist Jón vera mikill aðdáandi hunda.
„Mér finnst þeir sú dýrategund sem kemst næst því að vera englar. Þeir hafa hreint hjarta og ekkert nema kærleika.“
Jón segir ímynd hunda ekki alltaf þannig og vísar til reglulegra frétta af árásum hunda á fólk og að í Bandaríkjunum látast um 30-50 manns á ári eftir að hafa orðið fyrir árás hunds.
„Flest fórnarlambanna eru börn. Þetta eru vissulega alltaf hræðilegir harmleikir. Hvert atvik vekur athygli og óhugnað og fær umfjöllun í fjölmiðlum og kemur inn þeirri ranghugmynd að hundar séu hættulegir og þá sérstaklega ákveðnar tegundir hunda.“
Segir Jón fréttirnar gjarnan skrifaðar af fólki sem hefur litla þekkingu eða reynslu af hundum. Margar hundategundir verða fyrir ofstækisfullum og ósanngjörnum fordómum og fólk er gjarnan hrætt við sumar tegundir, einsog sjeffer- eða rottweiler.
„Staðreyndin er samt sú að allir hundar og hundategundir eru í eðli sínu mannelskar verur og grimmd yfirleitt heimskulegri eða illri meðferð eigenda þeirra að kenna, vanrækslu, ofbeldi sem þeir verða fyrir og oft samhliða rangri og jafnvel níðingslegri þjálfun sem byggist á líkamlegum refsingum. Auðvitað má segja að sumir hundar séu grimmir en 90% tilvika eru samt frekar grimmd hinna svokölluðu eigenda að kenna. Manneskjan er miklu grimmari dýrategund. Þótt 30-50 dauðsföll barna vegna hunda á ári sé óásættanlegur fjöldi þá blikna þær tölur samt í samanburði við þann fjölda barna sem eru kvalin og jafnvel myrt af foreldrum sínum.“
Nefnir Jón að í Bandaríkjunum eru um 500 börn myrt af foreldrum sínum árlega. Foreldrar drepa margfalt fleiri börn en allar þessar hræðilegu hundategundir samanlagt.
„Manneskjan er langgrimmasta skepna jarðarinnar og líka svo klár að hún nær jafnvel að kenna öðrum dýrategundum um. Við þurfum að að stöðva þessa neikvæðu umræðu um hunda og benda fólki á að þessi sorglegu atvik eru undantekningar.“
Segir Jón hunda kærleiksverur og gera gagn um allt samfélagið. „Þeir aðstoða sjónskerta, sjúka og fatlaða. Þeir finna dóp sem reynt er að smygla til landsins. Ef við týnumst í óbyggðum eða verðum undir snjóflóði þá leita þeir að okkur. Hundar bjarga ekki bara lífum heldur geð heilsu líka. Þeir eru vinir einmana fólks og virkur hluti af þúsundum fjölskyldna á Íslandi. Engar tvær dýrategundir eiga sambærilegt samband og maður og hundur. Vinnum gegn hundarasisma á Íslandi. Sýnum hundum þá vináttu, skilning og virðingu sem þeir eiga svo sannarlega skilið. Þeir eru englar, ekki við.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗