Gunnar rifjar upp gleymdan frídag Íslendinga: „Er það ekki heldur dapurlegt?“

Gunnar Salvarsson, fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður, segir dapurlegt að Íslendingar skuli nánast hafa gleymt einum merkasta degi í sögu þjóðarinnar, fullveldisdeginum 1. desember.

Hann bendir á að færa megi sterk rök fyrir því að fullveldistakan árið 1918 hafi markað meiri þáttaskil í sjálfstæðissögu þjóðarinnar en lýðveldisstofnunin árið 1944.

Gunnar fjallar um þetta í pistli á Vísi í morgun en hann rifjar upp að eitt sinn hafi 1. desember verið frídagur í skólum og að einhverju leyti á vinnumarkaði. Árið 1963 hafi sérstakur kjaradómur orðið til þess að dagurinn missti stöðu sína sem frídagur hjá tilteknum starfsstéttum og árið 1995 hafi verið samið um kennsluskyldu á fullveldisdaginn.

„Þótt það hljómi sérkennilega var það karp um kaup og kjör sem réði örlögum 1. desember, fullveldisdags þjóðarinnar.“

Nýr frídagur í skammdeginu?

Gunnar bendir á að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi oftar en einu sinni viðrað þá hugmynd að gera 1. desember að rauðum degi. Í fyrra hafi hún velt því upp hvort hún ætti að ræða hugmyndina við verkalýðshreyfinguna og samtök atvinnurekenda.

„Hefur það samtal farið fram?“ spyr Gunnar.

Hann bendir jafnframt á að frá verslunarmannahelgi og fram að jólum líði nærri fimm mánuðir án nokkurs almenns lögbundins frídags. Frídagur í byrjun desember væri því varla óvelkominn.

Gunnar segir þó að frídagurinn sé ekki aðalatriðið heldur að þjóðin haldi daginn í heiðri.

„Við Íslendingar erum stolt af sjálfstæði okkar og höfum sannarlega ástæðu til þess. En er það ekki heldur dapurlegt að þjóð sem leggur svo mikið upp úr sjálfstæði skuli nánast hafa gleymt deginum þegar hún öðlaðist fullveldið?“

„Það er kominn tími til að dusta rykið af 1. desember, ekki aðeins af gömlum ljósmyndum, heldur líka úr minni þjóðarinnar.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab