Freyr tjáir sig við fjölmiðla

Freyr Alexandersson mætti til vinnu hjá Rosenborg eins og venjulega í morgun í skugga háværra orðróma um að hann sé að taka við Swansea í ensku B-deildinni.

Freyr var spurður af norsku sjónvarpsstöðinni TV2 í morgun hvort hann væri hættur hjá Rosenborg. Hann þvertók fyrir það og sagði að framundan væri æfing.

„Við ræðum það síðar í dag,“ sagði Freyr svo um fréttirnar um Swansea.

Talið er að viðræður Freys, Swansea og Rosenborg séu langt komnar, en íslenski þjálfarinn hefur umturnað gengi norska stórliðsins frá því hann tók við í sumar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab