Hjónin sögð í áfalli eftir innbrot á heimili þeirra - Helsta áhættan að búnaði hafi verið komið fyrir
Fókus
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 09:30
Katrín og Vilhjálmur. Mynd: Getty.
Vilhjálmur Bretaprins og Katrín eiginkona hans munu vera í áfalli eftir að öryggisteymi þeirra tókst ekki að koma í veg fyrir innbrot á heimili þeirra á Sandringham-setrinu.
„Ég held að þetta verði gríðarlega erfitt fyrir Vilhjálm og Katrínu,“ sagði Tom Sykes, blaðamaður sem fjallar um konungsfjölskylduna. „Ég held líka að þetta gæti gert það að verkum að þeim líði illa við að heimsækja staðinn í framtíðinni.“
Sykes útskýrði að heimili þeirra á svæðinu, Anmer Hall, hafi í gegnum árin verið „mjög sérstakur staður“ fyrir Katrínu. „Þau voru þar á meðan á COVID-faraldrinum stóð og það er eitt af fáum skiptum sem við höfum séð myndir eða myndskeið af þeim þar. Þetta er gríðarlega, gríðarlega alvarlegt,“ sagði Sykes.
Katrín varði einnig miklum tíma á sveitasetrinu á meðan hún var að jafna sig eftir krabbamein, og fjölskyldan hefur einnig dvalið þar í nokkrum fríum.
Mynd: Getty.
Simon Morgan, fyrrverandi lífvörður bresku konungsfjölskyldunnar hjá lögreglunni í London (Met Police), sagði í samtali við Page Six á þriðjudag að andlega áfallið sem fylgir mögulegu innbroti geti verið mjög alvarlegt.
„Þegar rætt er við þolendur innbrota nefna þeir sálrænu áhrifin oftar en þau líkamlegu, þá staðreynd að einhver hefur komist inn á heimili manns,“ útskýrði Morgan.
Nokkrar heimildir hafa tjáð Sykes að öryggisteymi hjónanna sé „algjörlega skelfingu lostið“ vegna innbrotsins. Hann tók einnig fram að sú staðreynd að hjónin hafi ekki verið á staðnum skipti engu máli.
Morgan útskýrði hins vegar að öryggisreglur í konunglegum bústöðum væru breytilegar eftir því hvort meðlimir konungsfjölskyldunnar væru á staðnum eða ekki. „Það gilda mismunandi verklagsreglur eftir því hvort einhver er heima eða ekki.“
Sykes heyrði í heimildarmanni innan öryggismála sem sagði að helsta hættan við aðstæður sem þessar væri sú, að einhver gæti hafa komið fyrir búnaði inni í húsinu.
„Hvort sem um er að ræða hlustunartæki sem ætlað er að safna upplýsingum eða njósnagögnum, eða myndavél sem ætlað er að taka upp myndefni eða gögn,“ sagði Sykes. „Þessi tækni er orðin svo háþróuð að það er ómögulegt að koma auga á hana; það er því með ólíkindum að þeim hafi verið leyft að komast svona nálægt. Og auðvitað er versta martröðin, sú að um sprengju sé að ræða.“
Sykes segir að framkvæma þurfi „algjöra hreinsun“ í húsinu. „Þau verða að taka húsið í sundur áður en hjónin snúa þangað aftur; ganga úr skugga um að þetta sé ekki bara yfirvarp, að hér séu ekki bara tveir hálfvitar á ferð sem röltu inn fyrir slysni, og að engum hættulegum hlutum hafi í raun verið komið þar fyrir.“
Óvíst hvenær fjölskyldan dvelji aftur á sveitasetrinu
Morgan sagði að það, hvenær hjónin snúa aftur á sveitasetur sitt, muni að lokum ráðast af því hversu öruggum þau finnst þau vera.
„Þeim finnst kannski í lagi að nota þetta núna um helgina, ef þeir vilja. Ég veit ekki hvort þeir gera það eða ekki. Nú þarf að fara yfir hvort öryggisferlarnir hafi virkað eða ekki... og þegar allir eru sáttir við þá niðurstöðu, þá heldur lífið bara áfram.“
Sykes telur víst að einhver muni þurfa að axla ábyrgð á þeim alvarlegu mistökum í öryggismálum sem gerðu það að verkum að reynt var að brjótast inn.
„Ég held að einhverjir muni þurfa að taka pokann sinn,“ sagði Sykes. „Það hafa augljóslega átt sér stað ýmis öryggisbrot í konunglegum höllum undanfarin ár, en þetta er að mínu mati eitt það alvarlegasta, því svo virðist sem þeim hafi tekist að komast inn í húsið. Þetta er með ólíkindum, algjörlega hrikalegt ástand.“
„Lögreglan í Norfolk er augljóslega undir miklu álagi, en hún hefði átt að vera í samráði við lögregluna í London (Met). Þetta er með ólíkindum algjörlega með ólíkindum sérstaklega í ljósi þeirrar stöðu sem nú ríkir í alþjóðastjórnmálum.“
Tveir menn voru handteknir, grunaðir um innbrot, eftir að þeir komust inn á heimili hjónanna á mánudag.
„Lögreglan var kölluð til skömmu fyrir klukkan 18 að staðartíma eftir tilkynningu um grunsamlegar mannaferðir á staðnum,“ sagði talsmaður lögreglunnar í Norfolk í yfirlýsingu á þriðjudag. „Lögregla kom á vettvang og sérhæfður búnaður, þar á meðal lögregluhundar, drónar og þyrla frá flugdeild lögreglunnar, var kallaður til til að aðstoða við leit á svæðinu,“ segir í yfirlýsingunni. „Tveir menn voru handteknir á landareigninni, grunaðir um innbrot og ólögmæta innrás. Þeir eru enn í haldi lögreglu. Enginn var í húsinu þegar atvikið átti sér stað. Rannsókn málsins stendur enn yfir.“
Samkvæmt blaðinu The Sun voru hjónin og börnin þeirra þrjú stödd á aðalheimili sínu í Windsor þegar innbrotið átti sér stað.
Þrátt fyrir þetta óhugnanlega atvik telur Morgan ekki að konungsfjölskyldan hafi misst trúna á öryggisteymi sitt. „Ég tel að þau kunni afar vel að meta það,“ sagði hann. „Þau eru í raun í þeirri forréttindastöðu að njóta slíkrar verndar, enda sjá þau hvers kyns öryggisráðstafanir víðs vegar um heiminn.“
Ekki eina innbrotið hjá konungsfjölskyldunni
Tilraunin til innbrots er sú nýjasta í röð óhugnanlegra öryggisbresta við konunglegar hallir, en dæmi um slíkt má rekja allt aftur til ársins 1982, þegar óviðkomandi maður, Michael Fagan, komst inn í svefnherbergi Elísabetar II drottningar í Buckingham-höll, atvik sem vakti mikla athygli.
Á jóladag árið 2021 var annar óviðkomandi aðili handtekinn við Windsor-kastala, en sá hugðist ráða Elísabetu drottningu af dögum. Sama ár var kona handtekin eftir að hafa farið inn í Royal Lodge, bústað Andrews Mountbatten-Windsor. Konan hafði ráfað um svæðið í 20 mínútur áður en hún var handtekin.
Þremur árum síðar brutust tveir grímuklæddir innbrotsþjófar inn á Shaw Farm, sem er hluti af landareign Windsor-kastala, og stálu tveimur ökutækjum. Þau Vilhjálmur og Katrín voru ekki á staðnum þegar þetta átti sér stað. Í maí var grímuklæddur maður handtekinn eftir að hafa nálgast Andrew þar sem hann var á gangi með hundinn sinn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗