Aðsend grein: Er þörf á því að laga Ísland?
Aðsend grein úr Morgunblaðinu
„Við sögðumst ætla að laga Ísland. Við erum að laga Ísland.“ Þannig komst Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að orði í stefnuræðu sinni á Alþingi í september.
Þetta eru stór orð. Hvað var það eiginlega sem lá svona mikið á að laga þegar ríkisstjórnin tók við, og hefur það raunverulega verið „lagað“ á þeim tæpu tveimur árum sem liðin eru frá alþingiskosningum?
Ísland var þá og er enn í fremstu röð hvað viðkemur lífskjörum, jafnrétti, tekjujöfnuði og almennri velferð. Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar er Ísland með minnstan tekjuójöfnuð meðal Evrópuríkja. Þetta er árangur áratuga uppbyggingar, öflugs atvinnulífs og verðmætasköpunar. Vissulega var verðbólga of mikil og vextir háir þegar ríkisstjórnin tók við en verðbólgan var á niðurleið, vaxtalækkanir hafnar og væntingar að batna.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/67/6/1670618.jpg)