Myndir: Þjóðaröryggisráð fundar í varðskipinu Þór
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í brúnni. mbl.is/Eyþór
Þjóðaröryggisráð fundar nú um borð í varðskipinu Þór sem er við bryggju við Reykjavíkurhöfn.
Fundurinn er reglubundinn og er að þessu sinni um borð í varðskipinu í tilefni hundrað ára afmælis Landhelgisgæslunnar.
Ráðið er lögbundinn samráðsvettvangur stjórnvalda um þjóðaröryggismál sem hefur það meginhlutverk að fylgja eftir þjóðaröryggisstefnu Íslands.
Þau eiga sæti í ráðinu
Í ráðinu eiga fast sæti forsætisráðherra, sem er jafnframt formaður ráðsins, utanríkisráðherra, dómsmálaráðherra og ráðuneytisstjórar ráðuneytanna þriggja.
Þá eiga sæti tveir þingmenn, annar úr þingflokki sem skipar meirihluta og hinn úr þingflokki sem skipar minnihluta.
Einnig sitja í ráðinu forstjóri Landhelgisgæslunnar, ríkislögreglustjóri og fulltrúi Landsbjargar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



