Varði eiginkonuna eftir ljót ummæli
Stephen Curry, körfuboltastjarna Golden State Warriors, kom eiginkonu sinni Ayeshu til varnar eftir að fyrrverandi NBA-leikmennirnir Gilbert Arenas og Nick Young gagnrýndu hana í þættinum We Said What We Said.
Umræða þeirra snerist um atriði í myndinni Second Chance Holiday þar sem Ayesha kyssir mótleikara sinn, Matthew Daddario. Myndin kom út á Roku Channel.
Arenas hrósaði Stephen fyrir uppeldið á börnunum áður en hann kallaði Ayeshu „eina blettinn á fjölskyldunni“. Hann gagnrýndi hana fyrir að vera opinskárri en eiginkonur annarra körfuboltastjarna og Young tók undir það.
„Það hefur verið mikill hávaði. Venjulega truflar það hvorki mig né Ayeshu, en þegar þið gerið lítið úr því sem konan mín hefur áorkað snýst þetta um stærri umræðu um það hvernig þið lítið á konur í þessum heimi,“ sagði Curry í myndbandi á Instagram.
Curry dró einnig í efa skilning þeirra á leiklist og fór fram á opinbera afsökunarbeiðni: „Kannski getur afsökunarbeiðnin verið jafnhávær og umfjöllun þeirra.“
Arenas og Young báðust í kjölfarið afsökunar. „Ef ég sagði eitthvað þá biðst ég afsökunar eins og maður,“ sagði Young. Arenas bætti við: „Mér þykir leitt ef hann hefur móðgast.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/52/1695295.jpg)