Fullkomin jólagjöf fyrir konuna í þínu lífi
Hér höfum við safnað saman nokkrum gjafahugmyndum fyrir hana. Fjölbreyttum kostum sem geta veitt innblástur að persónulegri jólagjöf, hvort sem hún hefur gefið skýrar vísbendingar eða ætlar að láta koma sér á óvart. Unsplash/Kateryna Hliznitsova
Kannski hefur hún þegar fundið gjafir handa hálfri fjölskyldunni en lítið hugsað um hvað hana sjálfa langar í. Kannski er hún hins vegar dugleg að láta vita og hefur bent á nokkra álitlega pakkaefniskosti. Það er alltaf ánægjulegt að geta glatt hana með gjöf sem sýnir að einhver hafi hlustað og tekið eftir því sem henni finnst fallegt, skemmtilegt eða spennandi.
Smekkurinn getur gefið góðar vísbendingar, hvort sem hann birtist í litunum sem hún velur, hlutunum á heimilinu eða því hvernig hún kýs að verja frítímanum. Ein gleðst yfir fallegum skartgrip, önnur vill helst eitthvað fyrir næstu útivistarferð og sú þriðja myndi njóta þess að fá kvöldstund þar sem ekkert þarf að gera nema láta fara vel um sig.
Það er líka gaman að gefa eitthvað sem hún myndi síður kaupa handa sér sjálf. Örlítinn munað, tækifæri til að prófa nýtt áhugamál eða hlut sem hún hefur lengi dáðst að úr fjarlægð.
Hér höfum við safnað saman nokkrum gjafahugmyndum fyrir hana. Fjölbreyttum kostum sem geta veitt innblástur að persónulegri jólagjöf, hvort sem hún hefur gefið skýrar vísbendingar eða ætlar að láta koma sér á óvart.
Mjúk og falleg peysa
Suður-Vík er mjög létt, mjúk og falleg peysa frá Farmers Market.
Peysan er úr 67% mohair, 29% silki og 4% glitgarni.
Peysa sem allar konur myndu gleðjast yfir því að fá í pakkann sinn.
Midnight Black-hárspennan úr Locks of Legacy-línunni fæst í takmörkuðu upplagi í snyrtivörudeild Hagkaups. Ljósmynd/Aðsend
Fullkomnaðu greiðsluna með hárskrauti frá Balmain Paris
Sígildar spangir, fíngerðar hárnælur eða skrautlegar spennur breyta útlitinu á augabragði.
Midnight Black-hárspennan úr Locks of Legacy-línunni fæst í takmörkuðu upplagi. Slípaðir svartir steinar glitra eftir því hvernig ljósið fellur á þá. Hlýr, gylltur rammi umlykur steinana og bláir steinar á milli þeirra gefa spennunni lit.
Nældu fremstu lokkana aftur með spennunni og láttu hárið falla laust um axlirnar, eða settu hárið í lágan snúð og festu spennuna rétt fyrir ofan hann, þar sem hún fær að njóta sín eins og skartgripur í hárinu.
Skoðaðu Midnight Black-línuna og úrvalið af hárskrauti frá Balmain Paris í snyrtivörudeild Hagkaups.
Með mjúkri og fallegri skinnáferð, fallegum smáatriðum og einstakri hönnun er MIKA langt frá því að vera hefðbundin taska. Hún setur svip á hvaða klæðnað sem er og er tilvalin fyrir konur sem vilja bæði þægindi og fallega hönnun. Ljósmynd/Aðsend
Rúmgóð taska sem stelur senunni
Við þekkjum það flestar að ætla rétt aðeins að skreppa út úr húsi en enda á því að taka hálfa búslóðina með okkur. Hvort sem ferðinni er heitið í ræktina, sund, helgarferð eða upp í bústað virðumst við einhvern veginn alltaf þurfa að taka aðeins meira með en við ætluðum okkur.
En hver segir að stór og rúmgóð taska geti ekki líka verið flott?
MIKA-taskan frá KARE sameinar það besta úr báðum heimum. Hún er rúmgóð, praktísk og á sama tíma einstaklega falleg og stílhrein.
Með mjúkri og fallegri skinnáferð, fallegum smáatriðum og einstakri hönnun er MIKA langt frá því að vera hefðbundin taska. Hún setur svip á hvaða klæðnað sem er og er tilvalin fyrir konur sem vilja bæði þægindi og fallega hönnun.
Þetta er taskan sem þú grípur með þér aftur og aftur, hvort sem það er fyrir hversdagslegt amstur eða næsta ferðalag.
Fyrir hana sem elskar fallega og öðruvísi hluti er MIKA-taskan jólagjöf sem hittir beint í mark.
MIKA-töskurnar frá KARE fást í Húsgagnahöllinni í nokkrum fallegum litum.
Drottningin er sérsniðið gjafabréf en gildir hjá öllum samstarfsaðilum Gjafabréf.is, sem eru yfir 250 um allt land, svo það er alltaf eitthvað sem hentar. Ljósmynd/Aðsend
Gjöfin fyrir sanna drottningu
Drottningin er gjöf fyrir konuna sem gefur öllum öðrum allt en gleymir stundum sjálfri sér. Nú er komið að henni. Með Drottningunni getur hún gert sér dagamun, hvort sem það er dekur í spa, ný flík, góður hádegisverður með vinkonunum eða fallegur hlutur fyrir heimilið.
Drottningin er sérsniðið gjafabréf en gildir hjá öllum samstarfsaðilum Gjafabréf.is, sem eru yfir 250 um allt land, svo það er alltaf eitthvað sem hentar. Þú velur upphæðina og sendir gjafabréfið beint í símann.
Fullkomin jólagjöf fyrir mömmu, ömmu, systur, vinkonu eða kærustu. Fyrir konuna sem er sönn drottning í þínu lífi. Því það á bara að vera gaman að gleðja.
Í tilefni af Dimmum dögum er 20% afsláttur af öllu í Lífstykkjabúðinni Selenu út 1. desember. Ljósmynd/Aðsend
Jólagjöfin fyrir hana er mjúk í ár
Nú þegar skammdegið færist yfir er fátt notalegra en að umvefja sig vönduðum og mjúkum flíkum. Í tilefni af Dimmum dögum bjóðum við 20% afslátt af öllu í Lífstykkjabúðinni Selenu út 1. desember.
Þetta er fullkomið tækifæri til að klára jólagjafirnar snemma og forðast jólaösina með því að velja gjöf sem gleður langt fram á nýtt ár. Hjá okkur finnur þú glæsilegt úrval af náttfötum, sloppum og hlýjum inniskóm úr einstökum gæðaefnum sem veita hámarks þægindi og lúxus í hversdagsleikanum.
Hvort sem þú ert að leita að hinni fullkomnu jólagjöf fyrir konu sem þér þykir vænt um eða vilt einfaldlega gera vel við sjálfa þig í vetrarkuldanum, þá eigum við eitthvað sem passar.
Kíktu við í verslun okkar í Bláu húsunum við Faxafen og fáðu persónulega þjónustu, eða verslaðu í rólegheitum á selena.is. Tryggðu þér mjúku pakkana á frábæru verði áður en tilboðinu lýkur!
Dyson Airwrap Co-anda 2x er sannkölluð draumagjöf og líklega á óskalista margra fyrir jólin. Ljósmynd/Aðsend
Draumagjöfin er Dyson
Það er fátt skemmtilegra en að gefa gjöf sem hittir beint í mark. Fyrir þau sem hafa áhuga á hárumhirðu og hárgreiðslu leynast ýmsar spennandi jólagjafahugmyndir hjá ELKO.
Dyson Airwrap Co-anda 2x er sannkölluð draumagjöf og líklega á óskalista margra fyrir jólin. Þetta fjölnota hármótunartæki gerir þér kleift að þurrka, krulla, slétta og móta hárið með einu og sama tækinu. Tækið nýtir öflugt loftflæði til að móta hárið án þess að reiða sig á mikinn hita og hjálpar þannig til við að draga úr hitaskemmdum. Með fjölbreyttum aukahlutum er auðvelt að aðlaga tækið að mismunandi hárgerðum og þörfum.
Fjölnota hármótunartæki hafa notið mikilla vinsælda og eru fleiri spennandi valkostir í boði, meðal annars Shark FlexStyle, sem sameinar einnig hárþurrkun og fjölbreytta hármótun í einu tæki.
Á jólagjafasíðu ELKO er að finna fjölbreytt úrval gjafahugmynda fyrir hana, allt frá snyrti- og hárvörum yfir í tæknigræjur, heilsu- og líkamsræktartæki og ýmislegt fleira.
Apple Watch Series 12 er persónuleg og nytsamleg jólagjöf sem hún getur haft ánægju af langt fram yfir hátíðarnar. Ljósmynd/Aðsend
Jólagjöf sem fylgir henni alla daga
Gleðjið hana með Apple Watch Series 12, þar sem falleg hönnun og snjallir eiginleikar fara saman. Hvort sem hún byrjar daginn á göngutúr, tekur á því á æfingu eða nýtur rólegrar stundar hjálpar úrið henni að fylgjast með hreyfingu, svefni og líðan.
Púlsmælingar, tíðahringsskráning og hjartalínuritsapp veita henni gagnlegar upplýsingar um eigin líkama á meðan svefnmælingar hjálpa henni að kynnast svefnvenjunum betur. Úrið skráir fjölbreyttar æfingar, allt frá jóga til sunds, og með Apple Pay getur hún greitt á hraðan og einfaldan máta.
Útlitið má laga að hennar stíl með ólum og úrskífum, hvort sem tilefnið er hversdagslegt eða hátíðlegt. Apple Watch Series 12 er persónuleg og nytsamleg jólagjöf sem hún getur haft ánægju af langt fram yfir hátíðarnar.
Hlý jólagjöf handa henni
Fallegt teppi frá Elvang er jólagjöf sem hún getur notið allt árið. Það er notalegt að vefja því um sig með fyrsta kaffibollanum á jólamorgni eða kúra undir því með góða bók á dimmu vetrarkvöldi. Milli stunda fær það sinn stað á sófaarminum eða við fótagaflinn og setur hlýlegan svip á heimilið.
Teppin fást í Heimahúsinu í ýmsum litum og mynstrum. Veldu lit sem hún heldur upp á eða mynstur sem passar við hennar stíl. Gjöf sem hlýjar henni aftur og aftur, löngu eftir að jólin eru liðin.
Black Friday-helgi verður í Heimahúsinu, 26.–30. nóvember, 20% afsláttur af teppunum frá Elvangi.
Ultra Soft Straight pants hafa notið gríðarlegra vinsælda síðan þær byrjuðu í sölu fyrir tveimur árum og hafa yfir 35.000 eintök selst á þeim tíma. Ljósmynd/Aðsend
Jólagjöfin sem hún á eftir að nota aftur og aftur
Ef það er einhver jólagjöf sem sameinar þægindi og það að líta vel út þá eru það Ultra Soft Straight Pants frá íslenska fatamerkinu Define the Line.
Buxurnar hafa notið gríðarlegra vinsælda síðan þær byrjuðu í sölu fyrir tveimur árum og hafa yfir 35.000 eintök selst á þeim tíma. Þær eru jafnframt langvinsælasta vara merkisins og það er kannski ekkert skrýtið því þær sameina tvennt sem fer ekki alltaf saman – að vera ótrúlega flottar og svo þægilegar að þú vilt helst ekki fara úr þeim.
Buxurnar eru úr einstaklega mjúku og teygjanlegu efni sem aðlagast líkamanum og teygist nánast endalaust. Þær eru sérstaklega þægilegar yfir magasvæðið og fullkomnar fyrir þær sem þekkja tilfinninguna að vilja helst hneppa frá buxunum eftir góða máltíð. Í þessum buxum þarftu ekki einu sinni að hugsa um það!
Jólagjöf sem á ekki eftir að gleymast inni í fataskáp, heldur verða ein af þessum flíkum sem hún grípur í aftur og aftur.
Óskaskrín eru gjafaöskjur sem innihalda fjölbreyttar upplifanir og hafa notið vinsælda sem gjafir við ýmis tilefni, þar á meðal um jólin. Ljósmynd/Aðsend
Hennar eigin stund
Óskaskrín eru gjafaöskjur sem innihalda fjölbreyttar upplifanir og hafa notið vinsælda sem gjafir við ýmis tilefni, þar á meðal um jólin. Í stað hefðbundinnar gjafar býður Óskaskrín upp á tækifæri til að velja upplifun eftir eigin smekk, hvort sem það er dekur, kvöldverður eða notaleg stund.
Meðal vinsælla valkosta handa henni eru Dekurstund, Eðal Dekur, Lúxus Bröns og Rómantík. Þar geta viðtakendur valið úr fjölbreyttu úrvali samstarfsaðila um land allt, allt frá baðstofum og snyrtistofum til veitingastaða og nýtt gjöfina þegar þeim hentar. Gefðu stund sem er hennar eigin og minningu sem endist lengur.
Óskaskrín fást í verslunum Hagkaups, Pennans Eymundsson, Blómavals og á vefnum Óskaskrín.is.
Efri-Reykir ponsjóið frá Farmers Market er mjúkri alpakka- og ullarblöndu og er því bæði hlýtt og létt. Ljósmynd/Aðsend
Hlýtt og fallegt ponsjó
Efri-Reykir ponsjóið frá Farmers Market er mjúkri alpakka- og ullarblöndu og er því bæði hlýtt og létt.
Ponsjóið fæst í tveimur litum.
HybridAir Styler er tilvalin jólagjöf fyrir þær sem vilja gera hárrútínuna bæði einfaldari og skemmtilegri. Ljósmynd/Aðsend
Þægindi, notagildi og lúxus
Það er fátt betra en að eiga eitthvað sem einfaldar daginn og sparar dýrmætan tíma. Sérstaklega þegar það sameinar þægindi, notagildi og lúxus. HybridAir Styler er einmitt þannig tæki og því tilvalin jólagjöf fyrir þær sem vilja gera hárrútínuna bæði einfaldari og skemmtilegri.
Með þessu tryllitæki er hægt að blása hárið, búa til fallegar, mótaðar krullur með „AirRods“-hausunum og fullkomið blowout með „Blowout Rod“-hausnum.
„AirRods“-hausarnir eru með keramikplötum sem gerir það að verkum að þeir hitna meira en sambærilegar vörur og krullurnar haldast því lengur.
HybridAir Styler er með tvöfaldri Ionic Bonding-tækni sem losar bæði jákvæðar og neikvæðar jónir til að draga úr frizz-i og loka rakann inni í hárinu.
HH Simonsen-raftækin eru þekkt fyrir að endast vel og lengi svo þetta er gjöf sem heldur áfram að gleðja löngu eftir að jólunum lýkur.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/51/1695145.jpg)











