Hann brosir og maður gleymir öllu

Alfons heilsar upp á Sunnu Dögg og Oliver Henry eftir leik. Ljósmynd/Instagram/Sunnaragnarsdottir

„Við getum orðað það þannig að ég er mjög heppinn með að konan mín er tilbúin að taka allar nætur. Það hjálpar mér helling,“ sagði Alfons Sampsted, knattspyrnumaður hjá Go Ahead Eagles í Hollandi, í samtali við Morgunblaðið.

Alfons og unnusta hans, Sunna Dögg Ragnarsdóttir, eignuðust sitt fyrsta barn í sumar, drenginn Oliver Henry. Hann leyndi ekki ánægju sinni með föðurhlutverkið.

„Mér finnst þetta æðislegt. Þetta er ógeðslega gaman. Það koma augnablik þar sem maður þarf að vera mikið á ferðinni og setja orkuna á réttan stað.“

Heimkoman eftir leik hafi líka öðlast nýja merkingu.

„En síðan kemur maður heim og hann brosir og maður gleymir öllu, góðu og slæmu leikjunum. Mér finnst þetta bara æðislegt.“

Fjölskyldan hefur komið sér fyrir í Deventer og Alfons sagði lífið í hollenska bænum fara vel í þau.

„Þetta er kósí lítill bær og við erum endalaust á kaffihúsum og veitingastöðum. Okkur fjölskyldunni líður mjög vel.“

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab