Kom í ljós að þekktur maður á von á börnum með tveimur konum með skömmu millibili - Önnur þeirra var í rusli
433
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 08:30
Rauany Barcellos (t.v.) og Rai Araujo (t.h.)
Brasilíski markvörðurinn Hugo Souza á von á tveimur dætrum með tveimur mismunandi konum á næstu mánuðum.
Souza, sem er 27 ára gamall og leikur með Corinthians í heimalandinu, sleit trúlofun sinni við Rauany Barcellos í apríl. Í júlí var það svo gert opinbert að þau ættu von á barni saman, en Barcellos er nú komin átta mánuði á leið.
Nú hefur áhrifavaldurinn Rai Araujo staðfest að hún eigi einnig von á barni með markverðinum en hún er komin sex mánuði á leið.
Hugo Souza.
Araujo staðfesti fréttirnar í samtali við brasilíska tímaritið Quem en sagðist ekki hafa ætlað sér að gera þær opinberar. Hún tók þó fram að Souza ætlaði að standa við skyldur sínar sem faðir.
Araujo hefur einnig greint frá því á samfélagsmiðlum að meðgangan hafi komið henni í opna skjöldu og að fyrstu vikurnar hafi einkennst af gráti, sársauka og ótta.
Souza er enn í góðu sambandi við fyrrum unnustu sína og mætti meðal annars í kynjaveislu til hennar á dögunum þar sem kyn ófædda barnsins var opinberað.
Souza hóf feril sinn hjá Flamengo og hefur leikið fyrir brasilíska landsliðið en var ekki í hópnum á HM í sumar.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗