Breyta kerfinu og laun formanns lækka um 28%
Breytingar hafa verið gerðar á launakjörum stjórnarmanna í Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Horfið hefur verið frá tengingu við þingfararkaup og laun formanns stjórnar hafa verið lækkuð um 28%. Þetta var ákveðið á fundi stjórnarinnar á dögunum.
Laun formannsins Almars Guðmundssonar voru áður 833.842 krónur á mánuði en eru nú 600.000 krónur. Það er tvöföld þóknun stjórnarmanna. Áður voru föst stjórnarlaun 18% af þingfararkaupi en greiðslur til formanns 50% af þingfararkaupi. Það var Almar sjálfur sem lagði til að ráðist yrði í umræddar breytingar.
Formaður hefur síðustu ár fengið akstursgreiðslur ofan á laun sín en í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins segir upplýsingafulltrúi sambandsins að því hafi verið breytt. „Formaður stjórnar sambandsins fær engar aðrar fastar greiðslur frá sambandinu umfram mánaðarlega þóknun fyrir formennsku í stjórn. Ferðakostnaður formanns sem fellur til vegna starfa í þágu sambandsins er hins vegar greiddur samkvæmt gildandi reglum. Þar er átt við kílómetragjald sem greitt er fyrir akstur út fyrir höfuðborgarsvæðið eða bílaleigubíl í lengri ferðum. Þá er gisting á ferðalögum greidd en engir dagpeningar. Erlendis gilda reglur ríkisins,“ segir í svarinu.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗