Í fyrsta sinn hjá Liverpool
Liverpool átti í fyrsta sinn frá því að skráningar hófust tímabilið 2003-2004 ekki eitt einasta skot á rammann í tapi fyrir Englandsmeisturum Arsenal, 1:0, í ensku úrvalsdeildinni á Anfield í gær.
Kai Havertz skoraði sigurmark Arsenal snemma leiks en liðið trónir á toppi deildarinnar með 24 stig. Liverpool er hins vegar í fimmta sæti með 15 stig.
Liverpool komst í nokkrar góðar stöður í leiknum en tókst þrátt fyrir það ekki að eiga eitt einasta skot á rammann.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗