Fær engar bætur eftir vopnað rán á heimilinu
Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum hefur komist að þeirri niðurstöðu að viðskiptavinur ónefnds vátryggingafélags eigi ekki rétt á bótum úr fjölskyldutryggingu sinni eftir að sonur viðkomandi, var samkvæmt lögregluskýrslu, rændur á heimilinu en sonurinn var ekki með lögheimili þar. Var lögreglu greint frá því að óþekktur aðili hefði ruðst inn á heimilið með skammbyssu, ógnað syninum með byssunni og rænt ýmsum munum af honum.
Lögregla var kölluð til vegna atviksins í mars 2025. Samkvæmt lögregluskýrslu var ýmsum munum rænt af syninum en samkvæmt ítarlegri lista yfir stolna muni voru sumir þeirra í eigu foreldrisins en miðað við álit nefndarinnar er um að ræða föður sonarins.
Faðirinn fór fram á bætur úr heimilistryggingu sinni en var neitað um þær á þeim forsendum að sonur hans væri ekki með lögheimili hjá honum og félli því ekki undir skilmála tryggingarinnar. Þar sem í lögregluskýrslu kæmi fram að allir hinir stolnu munir væru í eigu sonarins væri bótaréttur ekki fyrir hendi. Tryggingafélagið benti föðurnum á að hann gæti borið málið undir úrskurðarnefnd í vátryggingamálum en að það yrði hann að gera innan árs.
Í málskoti föðurins kom fram að hluti hinna stolnu muna hefði verið í eigu hans sjálfs en hluti í eigu sonar hans og bótaréttur væri til staðar vegna þeirra muna sem hann sjálfur ætti. Vildi faðirinn meina að lögreglan hefði ekki staðið vel að skýrslugerð í málinu og sonur hans hafi verið í miklu uppnámi þegar hann gaf framburð sinn. Sonurinn hafi ekki verið beðinn um að gefa aðra skýrslu þegar hann var kominn í jafnvægi.
Of lengi
Í andsvörum tryggingafélagsins kom fram að faðirinn hafi skotið málinu til nefndarinnar meira en ári eftir að félagið hafnaði bótaskyldu. Samkvæmt lögum væri bótaréttur hans því niðurfallinn vegna tómlætis. Vísaði félagið enn fremur til þess að enginn gögn hefðu verið lögð fram til að sanna eignarhald föðurins á hinum stolnum munum. Það væri á hans ábyrgð að sanna að hann ætti munina.
Faðirinn hafnaði því að málið væri meira en ársgamalt. Þá gæti hann ekki lagt fram frekari gögn um eignarhald sitt á hinum stolnum munum enda kæmi nafn kaupanda almennt ekki fram á kaupnótum.
Tryggingafélagið benti á móti á að við kaup á til að mynda raftækjum væri kennitala kaupanda almennt skráð og því ætti að vera einfalt að afla frekari gagna um eignarhald föðurins á umþrættum munum.
Það er niðurstaða úrskurðarnefndar í vátryggingamálum að faðirinn hafi verið of seinn að snúa sér til nefndarinnar. Vátryggingafélagið hafi hafnað bótaskyldu í apríl 2025 en um leið upplýst föðurinn um að hann hefði eitt ár til að skjóta höfnuninni til nefndarinnar. Það hefði hann hins vegar ekki gert fyrr en í júní 2026. Faðirinn hafi ekki sýnt fram á að hann hafi rofið ársfrestinn með t.d. málshöfðun. Það sé ekki hægt að taka undir með honum með að málið væri ekki orðið meira en ársgamalt.
Niðurstaðan er því sú að réttur föðurins til bóta úr fjölskyldutryggingunni vegna hins meinta vopnaða ráns er fallinn niður.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗