Öllum gíslum bjargað
Kólumbískar öryggissveitir réðust snemma í morgun í stórmarkað í borginni Cartagena í Kólumbíu til að binda enda á gíslatöku sem staðið hafði í heilan sólarhring.
Nokkrar sprengingar heyrðust áður en öryggissveitirnar fóru inn í bygginguna, þar sem talið var að vopnaðir menn héldu um 30 manns.
Forseti Kólumbíu segir að öllum gíslunum hafi verið bjargað og að einn gíslatökumannanna hafi verið felldur.
Hermaður úr kólumbíska hernum sést inni í Exito-stórmarkaðnum eftir að öryggissveitir réðust inn í bygginguna til að frelsa gíslana AFP
„Í einstakri sameiginlegri aðgerð ríkislögreglunnar og hersins var öllum gíslunum bjargað,“ sagði Abelardo de la Espriella forseti við fréttamenn.
Yfirvöld hafa sagt að gíslatakan hafi hafist í kjölfar tilraunar til ráns á brynvörðum bíl sem fór út um þúfur. Í kjölfarið flúðu árásarmennirnir inn í stórmarkaðinn Exito og tóku þar fólk í gíslingu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
