Markle ákærður fyrir vörslu barnsníðsefnis - Á yfir höfði sér 40 ára fangelsisvist

Thomas Markle eldri, faðir Meghan Markle, hefur verið ákærður í Kaliforníu fyrir vörslu á barnaklámi. Nokkrir dagar eru liðnir frá því að dómari í Flórída úrskurðaði að Markle væri andlega hæfur til að sæta réttarhaldi.

Hinn 82 ára gamli Markle er ákærður fyrir tvo liði er varða vörslu á barnaklámi og gæti átt yfir höfði sér allt að 40 ára fangelsisvist verði hann sakfelldur.

Bill Essayli, saksóknari alríkisins í miðumdæmi Kaliforníu, greindi frá ákærunni á samfélagsmiðlinum X. Hann tók fram að Markle sé sakaður um að hafa „af ásetningi“ haft undir höndum „35 mm filmunegatífur með kynferðislegu efni þar sem börn koma við sögu.“

„Alríkislögreglunni barst vitneskja í síðasta mánuði um að Markle hefði undir höndum kynferðislegt efni sem sýnir misnotkun barna , annars vegar á Filippseyjum og hins vegar í tveimur geymslurýmum í Los Angeles,“ sagði Essayli í yfirlýsingu sinni. „Leit var framkvæmd á grundvelli dómsúrskurðar og efninu var gert upptækt.“

Í ákærunni er vísað til nokkurra tiltekinna mynda sem FBI fann og innihalda „að minnsta kosti eina mynd af barnaklámi þar sem koma við sögu barn sem ekki er komið á kynþroskaskeið og barn sem hefur ekki náð 12 ára aldri.“

Markle situr í gæsluvarðhaldi í Flórída og mun að öllum líkindum koma fyrir dómstól í Los Angeles á næstu vikum til að svara til saka samkvæmt ákærunni að sögn Essayli.

„Rannsókn málsins stendur enn yfir. Litið er á Markle sem saklausan þar til sekt hans hefur verið sönnuð,“ sagði hann og hvatti jafnframt alla þá sem búa yfir upplýsingum um aðila sem tengjast barnaklámi til að hafa samband við FBI.

Úrskurðurinn dómarans í Florida byggir á mati geðlæknis sem komst að þeirri niðurstöðu að Markle, sem greindist með heilabilun fyrr á þessu ári, hefði „nægilega getu til að skilja eðli og afleiðingar þeirra ákæra sem á hendur honum hvíla.“

Til stóð að halda fyrirtöku í máli Markle í Flórída þann 1. desember. Nú þegar ákæra hefur verið gefin út á hendur honum í Kaliforníu mun málið verða tekið fyrir þar.

Markle var handtekinn á dvalarheimilinu Maravida Senior Living í Flórída þann 6. nóvember, grunaður um brot gegn alríkislögum er varða vörslu á barnaklámi. Hann var handtekinn eftir að alríkislögreglumenn (FBI) fundu efni, sem talið er innihalda myndir af kynferðislegu ofbeldi gegn börnum, í nokkrum geymslurýmum á Los Angeles-svæðinu sem voru skráð á nafn hans. Markle var upphaflega látinn laus gegn tryggingu og sneri aftur á dvalarheimilið. Hann var hins vegar tekinn aftur í varðhald örfáum dögum síðar, eftir að hann klippti af sér ökklabandið um miðja nótt.

Í kjölfar handtökunnar í Flórída var Thomas einnig ákærður fyrir misnotkun á börnum á Filippseyjum, en hann hafði sætt rannsókn af hálfu lögreglunnar í Cebu-borg. Sonur hans, Thomas Markle yngri, mun hafa fundið efni sem tengist kynferðislegri misnotkun barna á heimili föður síns og í geymslurými á Filippseyjum, og tilkynnt lögreglu um fundinn. Blaðamenn Daily Mail munu einnig hafa fundið svipað efni í yfirgefnu geymslurými Thomasar eldri, nálægt fyrrum heimili hans í Rosarito í Mexíkó. Thomas eldri vísaði ásökunum sonar síns á bug og sagði við Daily Mail í október að hann hefði greitt fyrir kynlíf á Filippseyjum, en að hann hefði ekki sofið hjá stúlkum undir lögaldri.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab