24 ára læknanemi í lést í draumaferðinni – Nú vaknar óhugnanlegur grunur
Kanadísk kona, sem lést skyndilega í útskriftarferð til Tyrklands, kann að hafa orðið fyrir eitrun af völdum stórhættulegs skordýraeiturs á hóteli í Istanbúl.
Tyrknesk yfirvöld töldu upphaflega að matareitrun hefði orðið henni að bana en fjölskylda hennar hefur alla tíð efast um þá niðurstöðu.
Konan, Bérengère Deveaux-Cattino, var aðeins 24 ára og nýbúin að ljúka læknanámi þegar hún hélt til Tyrklands með vinum sínum í júní í fyrra. Hún lést þann 17. júní eftir að hafa veikst hastarlega á hótelinu.
Kanadíska ríkisútvarpið CBC hefur rannsakað málið í samstarfi við Radio-Canada og birt niðurstöðurnar í ítarlegri umfjöllun. Bandaríska blaðið New York Post greindi einnig frá málinu um helgina.
Veiktust hastarlega um nóttina
Bérengère og vinkona hennar höfðu verið að skoða sig um í Istanbúl og borðað kjúklingarétt, drukkið tyrkneskt te og fengið sér baklava í eftirrétt.
Morguninn eftir vöknuðu þær báðar fárveikar og köstuðu ítrekað upp. Ástandið versnaði hratt og voru þær fluttar á sjúkrahús.
Bérengère lést skömmu síðar. Systir hennar, Éléonore, og faðir þeirra voru á leið til Tyrklands þegar þeim bárust þær hörmulegu fréttir að hún væri látin.
Krufning í Tyrklandi leiddi til þeirrar niðurstöðu að matareitrun hefði valdið dauða hennar. Réttarlæknir í Quebec gat hins vegar ekki staðfest þá niðurstöðu.
„Þetta var ekki matareitrun“
Í rannsókn CBC kemur fram að tyrkneski réttarmeinafræðingurinn Şebnem Korur Fincancı hafi farið yfir krufningarskýrsluna og dregið niðurstöðurnar í efa.
„Þetta var ekki matareitrun,“ sagði hún og benti meðal annars á að Bérengère hefði verið með efnaskiptablóðsýringu (e. metabolic acidosis), sem getur verið vísbending um eitrun af völdum fosfíngass.
Slíkt gas getur myndast þegar álfosfíð, afar eitrað efni sem notað er við meindýraeyðingu, kemst í snertingu við raka.
Rannsókn CBC leiddi í ljós að gestur á hótelinu hafði kvartað undan bitum af völdum veggjalúsar í herberginu við hliðina á herbergi Bérengère, aðeins tíu dögum áður en hún gisti þar.
Hótelstjórinn staðfesti að reglulega væri fengið fyrirtæki til að úða herbergin gegn meindýrum. Fyrirtækið neitaði hins vegar að nota álfosfíð.
Fjögurra manna fjölskylda lést
Málið hefur vakið enn meiri athygli vegna dauða fjögurra manna þýsk-tyrkneskrar fjölskyldu á öðru hóteli í Istanbúl í nóvember í fyrra.
Upphaflega var talið að fjölskyldan hefði látist úr matareitrun en rannsókn leiddi í ljós að fosfíngas frá meindýraeyðingu í nærliggjandi herbergi hafði orðið henni að bana.
Eigendur meindýraeyðingarfyrirtækisins voru dæmdir í 18 ára fangelsi vegna málsins.
Samkvæmt rannsókn CBC hafa nærri 30 tilfelli fosfíneitrunar komið upp í Tyrklandi frá árinu 2023 og um tólf manns látist.
Enn hefur ekki verið staðfest að Bérengère hafi látist af sömu ástæðu. Tyrknesk yfirvöld hafa staðfest við CBC að rannsókn á dauða hennar sé enn opin.
Systir hennar segist staðráðin í að komast að sannleikanum. „Þar sem hún getur ekki lengur talað mun ég tala fyrir hana. Ég mun aldrei gefast upp.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗