Refsað fyrir söngva um samkynhneigða og fatlaða

Helgi Fannar Sigurðsson

Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 07:30

Frá The Den, heimavelli Millwall.

Millwall hefur verið gert að loka hluta heimavallar síns vegna hegðunar stuðningsmanna í leik gegn Charlton í ensku B-deildinni í janúar.

Stuðningsmenn Millwall sungu niðrandi söngva um fatlað fólk og samkynhneigða en félagið hefur fordæmt hegðun þeirra harðlega.

Fjórum svæðum í stúkunni á The Den verður lokað þegar Sheffield United kemur í heimsókn 8. desember. Þá hefur félagið verið sektað um 70 þúsund pund.

Er þetta í fyrsta sinn sem félagi í ensku deildakeppninni utan úrvalsdeildarinnar er gert að loka hluta heimavallar síns vegna slíkra söngva.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab