Nýsköpunarstyrkir hafa lækkað um 47%

Nýsköpunarstyrkir í formi skattafrádráttar hafa minnkað mikið síðustu tvö ár, eða um tæplega helming. Hér má sjá stjórnendur nokkurra þeirra fyrirtækja sem fengu hæstu styrkina í ár. (Uppi til vinstri) Karl Ágúst Matthíasson, framkvæmdastjóri tæknifyrirtækisins DTE, Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech, Pétur Mar Halldórsson, fyrrverandi forstjóri og núverandi stjórnarmaður í Nox medical og Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma. Samsett mynd/Arnþór/Hari/Eggert/Hákon/sisi

Lyfjafyrirtækið Coripharma fær hæstu upphæð þessa árs í sérstakan skattafrádrátt vegna nýsköpunar, eða samtals 385 milljónir, en það er jafnframt hámarkið.

Á þessu ári fá 145 fyrirtæki slíkan skattafrádrátt upp á samtals 8,7 milljarða, en það er talsverður samdráttur frá fyrra ári þegar fyrirtækin voru 201 og heildarupphæðin 12,8 milljarðar. Nemur samdrátturinn því rúmlega fjórum milljörðum milli ára en mörg stór fyrirtæki detta af listanum í ár.

Þegar horft er lengra aftur í tímann sést að samdrátturinn er enn meiri, en heildarstyrkir í formi skattafrádráttar náðu hámarki árið 2024 þegar þeir voru 16,4 milljarðar og hefur þessi upphæð því dregist saman um 47% á tveimur árum. Árin þar á undan hafði heildarstyrkurinn hins vegar margfaldast, en hann var 5 milljarðar árið 2020.

Þetta er annað árið sem Skatturinn birtir heildarlista yfir öll fyrirtæki sem fá skattafrádráttinn, en mbl.is hafði um langt skeið óskað eftir því að allar upplýsingar um þessar opinberu styrkgreiðslur yrðu birtar, enda höfðu þær hækkað mikið árin á undan og höfðu alvarlegar athugasemdir komið erlendis frá varðandi fyrirkomulag og eftirlit með styrkjunum.

CCP, Sidekick, Epiendo og Controlant ekki á lista í ár

CCP, sem hafði verið það fyrirtæki sem fékk hæsta styrkinn síðustu sex ár undir nöfnunum CCP og CCP platform, er ekki á listanum í ár. Fyrirtækið var enda selt nýjum eigendum í byrjun ársins og starfar það nú undir nafninu Fenris. Nýja fyrirtækið virðist hins vegar ekki hafa fengið neinn skattafrádrátt í ár þar sem nafn þess er ekki að finna þar.

Önnur fyrirtæki sem hafa verið með þeim sem hæstu styrkina hafa fengið undanfarin ár eru heldur ekki á lista í ár. Þar á meðal eru Sidekick Health, EpiEndo Pharmaceuticals, Controlant og Dohop.

Coripharma er eina fyrirtækið sem nær hámarkinu í ár fyrir minni og meðalstór fyrirtæki, en Alvotech nær hámarkinu fyrir stór fyrirtæki, en þar er hámarkið 275 milljónir.

DTE fær 331 milljón, Arctic Therapeutics er með 283 milljónir og Nox medical 262 milljónir.

Listann yfir skattafrádrátt á þessu ári má í heild sinni sjá hér að neðan:

Þrjú fyrirtæki skera sig úr 

Þegar síðustu þrjú ár eru skoðuð sést að þrjú fyrirtæki skera sig úr varðandi heildarupphæð. Það eru Coripharma, DTE og Nox medical sem öll hafa fengið yfir 1 milljarð hvert yfir síðustu þrjú ár.

Þar á eftir kemur CCP, en eins og fyrr segir er það bara fyrir árin 2024 og 2025, en samanlögð upphæð CCP og CCP platform þau árin er um 902 milljónir. Þar á eftir er Lucinity með um 853 milljónir og Alvotech með 825 milljónir.

Marel, Össur, Sidekick health og EpiEndo Pharmaceuticals eru svo öll með yfir 700 milljónir og Arctic Therapeutics rétt tæplega 700 milljónir.

Heildarlista yfir síðustu þrjú ár má sjá neðst í fréttinni.

Hröð lækkun síðustu tvö ár

Styrkir í formi skattafrádráttar hafa lækkað hratt síðustu tvö ár. Þetta er kerfi sem komið var á eftir fjármálahrunið til að ýta undir nýsköpun og byggja upp nýja stoð í atvinnulífinu. Til að byrja með var stuðningurinn á ári hverju 1-2 milljarðar, en tók svo að aukast og var hann 2,8 milljarðar árið 2017.

Lög um skattafrádráttinn voru útvíkkuð árið 2020, en þá gátu lítil og meðalstór fyrirtæki fengið allt að 35% af kostnaði við rannsóknir og þróun í skattafrádrátt, en stór fyrirtæki 25%. Var hámark þess kostnaðar sem hægt var að miða við hækkað í 1,1 milljarð á fyrirtæki, eða styrk upp á 275 milljónir fyrir stór fyrirtæki og 385 milljónir fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Voru þessi viðmið framlengd í nýju frumvarpi í fyrra eftir að fyrra frumvarp rann þá út.

Frá 2020 hækkaði heildarupphæðin mikið og tvöfaldaðist frá 2020 til 2021 þegar hún var 10,2 milljarðar. Árið 2023 var hún komin upp í 14,3 milljarða og náði sem fyrr segir hámarki árið 2024 í 16,4 milljörðum.

Síðan þá hefur skattafrádrátturinn lækkað og var 12,8 milljarðar í fyrra og er sem fyrr segir 8,7 milljarðar í ár.

Litlar upplýsingar voru um milljarðastyrki

Sem fyrr segir er þetta í annað skiptið sem upplýsingar um alla styrkþega eru birtar. Fyrir tveimur árum varpaði mbl.is ljósi á að litlar upplýsingar væru um stóran hluta þeirra sem fengju þessa styrki, en frá árinu 2017 til 2022 voru á bilinu 18,5% til 60,8% af heildarstyrkjum hvers árs birtir á vefsíðu Skattsins þar sem reglur sögðu að birta þyrfti styrki yfir 75 þúsund evrum. Hins vegar voru upplýsingar um 39,2% og upp í 81,5% upphæðanna eftir ári ekki birtar. Hafði þá verið upplýst um styrkþega 17,2 milljarða, eða 46,1% greiðslnanna, en ekkert hafði komið fram um styrkþega 20,1 milljarðs, eða 53,9% upphæðarinnar.

Fjármálaráðherra breytti hins vegar reglugerð um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki í fyrra og ber því að birta alla styrkina. 

Ekki er langt síðan fjármálaráðherra jók fjármagn til eftirlits með þessum styrkjum um 50 milljónir árlega. Var það meðal annars gert eftir alvarlegar athugasemdir OECD við fyrirkomulag og eftirlit með styrkjum. Var talið að aukið eftirlit gæti dregið úr meintu svindli í kringum kerfið um allt að einn milljarð.

Hvernig virkar þessi skattafrádráttur?

Þessi sérstaki skattafrádráttur virkar þannig að hann nemur 35% af styrkhæfum kostnaði þegar um lítil og meðalstór fyrirtæki er að ræða og 25% þegar um stór fyrirtæki er að ræða og getur því að hámarki orðið 385 milljónir króna hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum og 275 milljónir króna hjá stórum fyrirtækjum. Sé skattfrádráttur hærri en álagður tekjuskattur er mismunurinn greiddur út.

Styrkhæfur kostnaður er til dæmis launakostnaður hjá nýsköpunarfyrirtækjum vegna vinnu við staðfest verkefni, kostnaður í formi fyrningar vegna tækja og búnaðar sem notuð eru við rannsóknarverkefni, kostnaður vegna bygginga og lands sem notuð eru við rannsóknarverkefni og annar kostnaður sem stofnað er til beint vegna nýsköpunarinnar.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab