„Skil vel að sumt gæti stuðað fólk“

„Ég er fæddur með ódrepandi bjartsýni og það hefur oft komið mér í klandur,“ segir Jón Kalman sem skrifar m.a. um baráttu góðs og ills. Morgunblaðið/Hákon

Rithöfundurinn Jón Kalman Stefánsson ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í nýjustu skáldsögu sinni, Vakir þú? Þar skrifar hann um ævi „frægustu persónu mannkynssögunnar“, eins og sagt er á kápunni – ævi Jesú Krists.

Spurður hvernig það hafi komið til segir Jón Kalman: „Þetta efni hefur lengi leitað á mig og ég held að í öllum mínum bókum séu spurningar um Guð undir einhvers staðar, annaðhvort í djúpunum eða hreinlega uppi á yfirborðinu. Ef hann, hún eða það er til, hvað þýðir það, hver er ábyrgð okkar gagnvart Guði; hver er ábyrgð Guðs gagnvart okkur? Ég hef alltaf verið að reyna að finna svör við þessum spurningum í mínum skáldskap og held það hafi eiginlega verið spurning um tíma hvenær ég myndi stíga þetta skref og fara alla leið.“

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab