Sex fórust í flugslysi
Yfirvöld hafa fundið líkamsleifar allra sex sem voru um borð í flugvél sem hrapaði í sjóinn norðaustur af Horn-eyju í Mississippi, að sögn bandarísku strandgæslunnar.
CNN greinir frá. Leitinni, sem stóð í um fjórar klukkustundir, lauk „þegar kafarar frá sjávarauðlindastofnun Mississippi (MDMR) fundu líkamsleifar allra sex einstaklinganna inni í skrokki flugvélarinnar,“ sagði stofnunin í fréttatilkynningu.
Um borð í vélinni, sem var af gerðinni Cessna Centurion 210, voru fjórir fullorðnir og tveir drengir á aldrinum 8 til 10 ára þegar hún hrapaði síðdegis á þriðjudag, að sögn stofnunarinnar.
„Þetta eru hörmuleg málalok og við vottum fjölskyldum og ástvinum, sem standa frammi fyrir ólýsanlegum missi, okkar dýpstu samúð,“ sagði Trevor Blount, sem stýrir leitar- og björgunaraðgerðum hjá Mobile-umdæmi strandgæslunnar.
Strandgæslunni barst símtal um klukkan 15:45 í gær eftir að bandaríska flugmálastjórnin (FAA) missti samband við vélina, sagði talsmaður strandgæslunnar í Mobile við CNN.
Var á leið til Flórída
Flugrakningargögn sýndu að Cessna 210-vélin var á leið frá New Orleans til Fort Myers í Flórída.
Um 30 mínútum eftir flugtak, þegar vélin var í um 8.800 feta hæð rétt sunnan við Pascagoula í Mississippi, steyptist hún skyndilega í átt að sjónum, samkvæmt vefsíðunni Flightradar24. Vélin lækkaði flugið um 18.000 fet á mínútu, á meira en 200 mílna hraða á klukkustund, síðustu sekúndurnar áður en rakningargögnin hættu að berast um klukkan 15:30.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗