Íbúar í sérstöku samfélagi berjast gegn fyrirhuguðum framkvæmdum - „Myndu eyðileggja líf okkar allra“
Íbúar þorps sem er þríhyrningslaga berjast gegn áformum um byggingu 200 nýrra íbúða. Íbúarnir óttast að framkvæmdirnar muni breyta lögun og einkennum þessa sérstaka samfélags.
Þorpið, sem kallast Failand Triangle og er staðsett í Somerset á Englandi, dregur nafn sitt af þríhyrningslaga vegnetskerfi sínu. Íbúar segja að frekari uppbygging myndi eyða þessum sérkennum. Þorpið samanstendur af 350 heimilum á svæðinu sem afmarkast af vegunum Clevedon Road, Weston Road og Flax Bourton Road. Um 700 manns búa í þorpinu.
Eftir að verktakafyrirtækið Hill Residential lagði fram umsókn í desember á síðasta ári hafa íbúar hvatt sveitarstjórnina til að hafna henni. Þeir hafa nú skotið málinu til opinberrar eftirlitsstofnunar með skipulagsmálum og halda því fram að sveitarstjórnin hafi dregið lappirnar við að taka ákvörðun. Ákvörðun verður nú tekin í kjölfar sex daga rannsóknarferlis sem áætlað er að fari fram í apríl á næsta ári.
Maria Payne, fulltrúi í hreppsnefnd Wraxall og Failand, sagði: „Þríhyrningurinn er það sem skilgreinir byggðina í þorpinu Failand. Hér er verið að rjúfa mörk þríhyrningsins algjörlega. Í skipulagi svæðisins kemur skýrt fram að ekki eigi að rjúfa þessi mörk.“
Annar íbúi, sem lýsti þorpinu sem „einstöku og sérstöku“, sagði að framkvæmdirnar myndu „eyðileggja þessa sérstöðu, sem sjaldan sést annars staðar, og því verður að vernda hana.“
Á sama tíma segist Sandra, 61 árs, sem hefur alist upp í þorpinu, ekki vilja að neinu verði breytt.
„Þegar ég var í skólanum í þorpinu fórum við oft út að hlaupa, og þá snerist þetta um hversu oft við gætum hlaupið í hring um þríhyrninginn, þannig hefur þetta alltaf verið,“ sagði hún. „Þar er mikið um dýralíf og maður sér oft dádýr.“
Fyrirhugaðar framkvæmdir eiga að fara fram á svæðinu innan rauðu línunnar.
Aðrir íbúar segja að framkvæmdirnar myndu valda því að þorpið glataði sérkennum sínum, á meðan enn aðrir segja að þær myndu eyðileggja þorpið í heild sinni.
„Andrúmsloftið á staðnum myndi gjörsamlega eyðileggjast ef reist yrði nútímalegt íbúðahverfi þarna í miðjunni,“ sagði Charlie Barker, 23 ára.
Einn íbúi gekk meira að segja svo langt að segja að framkvæmdirnar myndu „eyðileggja líf okkar allra“ næstu tíu árin. „Það verður mikill hávaði af öllum jarðýtunum. Það sem við kunnum að meta hér er kyrrðin. Þetta er svæði á grænu belti. Þeir reyna að halda því fram að svo sé ekki, en það er bara vegna þess að þeir vilja græða peninga.“
Sveitarstjórnin og verktakinn benda hvort á annað og kenna hvor öðru um að hafa ekki svarað skilaboðum. Verktakinn segir: „Umsækjandinn hefur ítrekað þurft að ganga eftir svörum frá sveitarstjórninni, án þess hefði afgreiðsla umsóknarinnar gengið mun hægar fyrir sig.“
Sveitarstjórn North Somerset segir hins vegar að samið hafi verið munnlega um að framlengja umsóknarfrestinn fram í lok júlí, og bætir við: „Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir neitaði umsækjandinn að staðfesta þessa framlengingu skriflega.“
Verktakinn mun halda því fram í skipulagsrannsókninni að landið, sem byggja á, sé svokallað grátt belti (e. gray belt) og að þar megi byggja nauðsynlegt húsnæði sem skili verulegum ávinningi.
Sveitarstjórnin viðurkennir að svæðið falli undir skilgreininguna grátt belti, en leggur til að umsókninni verði hafnað þar sem lögfræðingar hennar munu færa rök fyrir því að staðsetningin sé ekki sjálfbær. „Tillagan gerir ráð fyrir uppbyggingu á stað sem er ekki sjálfbær, hún er úti í sveit, fjarri nauðsynlegri þjónustu, aðstöðu og innviðum, og telst því óviðeigandi uppbygging á grænu belti,“ segir í yfirlýsingu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗