Guðrún fagnaði í leðurkjól
Guðrún Sigríður Sæmundsen, rithöfundur og fjölmiðlakona, var að senda frá sér bókina Hér vil ég vera. Guðrún hélt vel heppnað útgáfuhóf í Húsi máls og menningar og ruku bækurnar út á staðnum.
Það var vel mætt í útgáfuhófið og spjallað Guðrún við gesti, sagði frá bókinni og las upp. Bókin sem er fjórða bók Guðrúnar er gefin út í samstarfi við Bókafélagið. Í bókum sínum sækir Guðrún innblástur í fólk af öllu tagi, íslenska náttúru og íslenskt samfélag. Áður hafa komið út eftir hana þrjár skáldsögur. Sú fyrsta, Hann kallar á mig, kom út árið 2015 og var síðar tilnefnd til Íslensku hljóðbókaverðlauna Storytel árið 2021. Bókin Andstæður kom út árið 2018 og skáldsagan Rósa árið 2021, en hún var þýdd á ensku og gefin út árið 2024.
Örlagasaga
Í nýjustu bókinni fjallar Guðrún um rithöfundinn Heru sem skrifar örlagasögu konu sem gerist rúmum áttatíu árum áður. Líf þeirra tveggja virðist skuggalega líkt þrátt fyrir að tíminn veiti þeim ólík bjargráð. Hér vil ég vera er örlagasaga tveggja kvenna sem gerist á sitthvorri öldinni. Báðar eru þær einstæðar mæður sem upplifa sömu tilfinningar og kljást við mannlega bresti eins og meðvirkni, ástarfíkn og alkóhólisma, en á ólíkum tíma.
Sigríður Á. Skúldadóttir móðir Guðrúnar en myndin á bókarkápunni er eftir hana. Skúli Sveinsson, Sigríður Hrund Guðmundsdóttir, Sveinn Valur og Erna Valsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Guðmundur Ingi Hinrkisson, Heiða Valda, Guðrún Vala Býldal, Svanhildur Anna Bragadóttir og Guðmundur Kristján Sæmundsen mbl.is/Eggert Jóhannesson
Guðrún Sigríður Sæmundsen og Jónas Sigurgeirsson, útgefandi hennar hjá Bókafélaginu, fögnuðu bókinni Hér vil ég vera. mbl.is/Eggert Jóhannesson
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗










