Gul viðvörun vegna storms
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið vegna suðaustan storms. Hún tekur gildi klukkan 18 í kvöld og verður í gildi fram til 23.
Í dag verður suðaustlæg átt, víða 8-15 m/s. Rigning verður austanlands og við vesturströndina en annars þurrt að mestu. Hitinn verður á bilinu 1 til 7 stig.
Síðdegis verður komin suðaustan 13-20 m/s suðvestantil með rigningu. Varað er við hvössum vindstrengjum síðdegis, t.d. undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli þar sem aðstæður geta orðið varasamar fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Það dregur úr vindi og úrkomu á þeim slóðum í kvöld.
Á morgun gengur í suðaustan 15-23 m/s, en hægari vindur verður vestanlands fram eftir degi. Það verður rigning með köflum og búist er við talsverðri úrkomu á Suðaustur- og Austurlandi. Veður fer heldur hlýnandi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
