María Rut Kristinsdóttir skrifar: Geymslan bíður!

Það kannast líklega flestir við þá tilfinningu að vera í miðri tiltekt. Jafnvel í geymslunni. Þar sem allt er út um allt, ekkert skipulag komið á hlutina og maður veit varla hvar á að byrja. Fatahrúgur, plastpokar með óræðum samtíningi og hálfkláraðar skúffur og hlutir sem hafa safnast upp í mörg ár án þess að nokkur hafi tekið almennilega á þeim.

Þá er freistandi að loka geymslunni og fara frekar að gera eitthvað skemmtilegra. Eitthvað auðveldara. Geyma geymsluna og fresta vandanum. Bíða með tiltektina. Kannski seinna. Ekki núna.

Það er ekkert mál að hneykslast á óreiðunni þegar maður stendur fyrir utan geymsluna. En það er sannarlega erfiðara að fara inn, taka til og bera ábyrgð á því að koma skipulagi á hlutina. 

Stundum finnst mér íslensk stjórnmál minna óþægilega mikið á þessa geymslu.

Kosið frá kyrrstöðu

Alþingiskosningarnar árið 2024 voru um margt merkilegar. Þegar talið var upp úr kjörkössunum blasti við skýr afstaða þjóðarinnar. Ákveðin vatnaskil. Gömlu valdaflokkunum var hafnað. Ríkisstjórnin féll. Einn stjórnarflokkurinn datt meira að segja af þingi. Annar rétt hélt velli. Úr varð að mynduð var ný ríkisstjórn þriggja flokka sem höfðu allir boðað breytingar á grunnkerfum íslensks samfélags. Þrjár konur í brúnni með skýra sýn. Nýja sýn.

Það var ekki tilviljun. Margir voru orðnir langþreyttir á kyrrstöðu, ósamstöðu og stjórnmálum sem virtust of oft snúast um að verja óbreytt ástand fremur en að leysa vandamálin. Kjósendur vildu breytingar. Þeir vildu að tekið yrði á málum sem höfðu verið látin sitja á hakanum árum og jafnvel áratugum saman.

Það kemur því kannski ekki á óvart að þessi hreinu valdaskipti hafi valdið titringi. Þegar hagsmunir sem lengi hafa notið verndar eru teknir til endurskoðunar verður mótspyrnan mikil. Hvernig áttu hagsmunaaðilar og þeir sem höfðu vanist því að hafa greiðan aðgang að stjórnmálamönnum og stjórnkerfinu að haga sér þegar nýir vindar fóru að blása? Hvert átti að hringja? Hvernig átti að stöðva mál sem áður hefðu kannski aldrei komist á dagskrá?

Birtingarmynd togstreitunnar varð einna skýrust í umræðunni um leiðréttingu á veiðigjöldum. Málið varð ákveðin táknmynd fyrir átökin um það hvort stjórnvöld ættu að þora að hrófla við rótgrónum hagsmunum. Gömlu valdaflokkarnir reyndu allt til að koma í veg fyrir afgreiðslu málsins. Það var jafnvel „heilög skylda“ sumra stjórnarandstæðinga eins og þeir sögðu. Íslandsmet í málþófi var uppskeran.

Ríkisstjórnin stóð þrátt fyrir allt í lappirnar. Gerði breytingar til að mæta ábendingum og áhyggjum en lauk að lokum verkinu. Það er einmitt það sem stjórnmál eiga að snúast um. Að hlusta, taka ákvarðanir og klára málin.

Breytum þessu

Eftir næstum tvö kjörtímabil undir stjórn VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar var fólk komið með nóg. Ekki síst af ósamstöðu og þeirri tilfinningu að stjórnmálin væru föst í sama farinu. Margir voru orðnir langþreyttir á gömlu valdaflokkunum og þeirri pólítísku nálgun sem hafði einkennt stjórn landsins.

Slagorð Viðreisnar í síðustu kosningum var einfalt en fól í sér skýr skilaboð og fyrirheit um það sem koma skyldi ef Viðreisn kæmist í ríkisstjórn. Slagorðið var: „Breytum þessu“.

Með því var Viðreisn að undirstrika mikilvægi þess að hreyfa við kerfunum. Að taka ákvarðanir, jafnvel þegar þær eru óvinsælar. Að standa í lappirnar þegar á reynir og klára málin.

Fólkið sem setti X við C kaus breytingar. Það kaus aðra nálgun í stjórnmálunum. Stjórnmál þar sem almannahagsmunir eiga að vega þyngra en sérhagsmunir og þar sem árangur er mældur í því sem tekst að framkvæma, ekki fjölda þeirra mála sem tekst að fresta.

Þetta á ekki síst við um landsbyggðina. Þar kaus fólk flokk sem lofaði breyttri nálgun. Á ríkisfjármálunum, á byggðamálunum og í stóru myndinni. Viðreisn hafði ekki verið öflugur flokkur á landsbyggðinni fram til ársins 2024 þegar flokkurinn fékk kjördæmakjörna þingmenn í öllum kjördæmum. Í sveitarstjórnarkosningunum í vor stækkaði flokkurinn svo enn frekar og fékk kjörna fulltrúa á sveitarstjórnarstiginu í öllum landshlutum.

Viðreisn er að vaxa á landsbyggðinni og ég tel að það endurspegli aukið traust til þess að við stöndum við það sem við segjumst ætla að gera. Að við þorum að breyta og þorum að taka ákvarðanir.

Við ætlum að klára verkið

Það er ekkert endilega alltaf skemmtilegt að ráðast í tiltekt. Stundum þarf að færa til, endurskoða, forgangsraða, henda hlutum og taka ákvarðanir sem kalla fram óánægju. Stundum verður óreiðan jafnvel enn sýnilegri áður en skipulagið kemst loks á.

Það er nákvæmlega þar sem ríkisstjórnin er stödd núna. Við erum í miðri tiltekt. Við erum að takast á við verkefni sem hafa verið látin bíða árum saman. Það er ekki alltaf þægilegt. Það er ekki alltaf vinsælt. En það þýðir ekki að maður eigi að hætta.

Þá skiptir máli að halda sjó, standa í lappir og klára verkið. Það er einmitt þar sem reynir mest á. Hvort við höfum kjark til að halda áfram þegar verkefnin verða erfið eða jafnvel leiðinleg. Hvort við höfum kjark til að taka ákvarðanir þegar þær eru ekki öllum að skapi. Hvort við ætlum að láta undan þrýstingi þeirra sem vilja helst að ekkert breytist.

Við vissum alveg að þetta yrði ekki auðvelt verkefni. Það var mikil óreiða í geymslunni. Við vissum að það yrði mótspyrna. Við vissum að það væri líklega þægilegra að halda okkur í sömu hjólförum og gömlu valdaflokkarnir. En það var ekki það sem kjósendur Viðreisnar báðu um. Það var ekki það sem kjósendur ríkisstjórnarflokkanna báðu um.

Þeir báðu okkur um að breyta þessu.

Það er ekki nóg að lofa breytingum fyrir kosningar. Það þarf líka að hafa úthald til að framkvæma þær eftir kosningar. Það þarf kjark til að klára verkefnin þegar á móti blæs.

Við ætlum ekki að loka geymslunni og vona að einhver annar taki til.

Við ætlum að klára verkið.

Við ætlum að breyta þessu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab