Gul viðvörun vegna storms

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið vegna suðaustan storms. Hún tekur gildi klukkan 18 í kvöld og verður í gildi fram til 23.

Í dag verður suðaustlæg átt, víða 8-15 m/s. Rigning verður austanlands og við vesturströndina en annars þurrt að mestu. Hitinn verður á bilinu 1 til 7 stig.

Síðdegis verður komin suðaustan 13-20 m/s suðvestantil með rigningu. Varað er við hvössum vindstrengjum síðdegis, t.d. undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli þar sem aðstæður geta orðið varasamar fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi.  Það dregur úr vindi og úrkomu á þeim slóðum í kvöld.

Vindaspá Veðurstofunnar klukkan 16 í dag.

Vindaspá Veðurstofunnar klukkan 16 í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Á morgun gengur í suðaustan 15-23 m/s, en hægari vindur verður vestanlands fram eftir degi. Það verður rigning með köflum og búist er við talsverðri úrkomu á Suðaustur- og Austurlandi. Veður fer heldur hlýnandi.

Veðurvefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab