„Þetta var töluvert mikil launalækkun“
„Þetta var erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka á mínum ferli,“ sagði knattspyrnukonan fyrrverandi Elísa Viðarsdóttir í Dagmálum.
Elísa, sem er 35 ára gömul, lagði skóna á hilluna á dögunum eftir að hún varð Íslandsmeistari í fimmta sinn með Breiðabliki en hún varð fimm sinnum Íslandsmeistari á ferlinum og tvívegis bikarmeistari.
Einhliða samningaviðræður
Elísa yfirgaf herbúðir Vals árið 2025 eftir níu ár í herbúðum félagsins en hún var fyrirliði liðsins frá árinu 2022.
„Ég fer í samningaviðræður við Val, vitandi það að margir leikmenn verða ekki áfram, og ég íhugaði það alveg hvort ég ætti yfirhöfuð að fara í þessar samningaviðræður,“ sagði Elísa.
„Ég vildi ekki gefa Val upp á bátinn og það hefði verið ósanngjarnt frá mínum bæjardyrum séð. Ég vildi bjóða þeim upp í tangó en samningaviðræðurnar voru algjörlega einhliða og ekkert hægt að hagga við þeim.
Þetta var töluvert mikil launalækkun og ég var ekki tilbúin í það því mér fannst ég líka búin með þennan uppbyggingarfasa í Val þar sem ég vissi að það væri farið að styttast í annan endann á ferlinum,“ sagði Elísa meðal annars.
Viðtalið við Elísu í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗