ÞG verktakar fengu ekki að taka þátt
ÞG verktakar fengu ekki að leggja fram tilboð í hönnun og byggingu Þjóðarhallar þar sem stálvirkjameistari, sem tilgreindur var í umsókn félagsins í forvali, uppfyllti ekki skilyrði um tveggja ára starfsreynslu sem meistari. Ekki lá fyrir á þeim tíma hvort aðkomu stálvirkjameistara þyrfti að verkinu.
Félagið fékk ekki að bæta úr annmarkanum þrátt fyrir að það legði fram meistarabréf annars manns daginn eftir að umsókninni var hafnað.
Málið er ekki síst athyglisvert í ljósi umfjöllunar Morgunblaðsins um fjárhagslegt hæfi Íslenskra aðalverktaka (ÍAV), sem urðu hlutskarpastir í útboðinu þrátt fyrir að eigið fé félagsins væri neikvætt þegar tilboði þess var tekið í júní sl. Gerð var krafa um að bjóðendur væru með að minnsta kosti 10% jákvætt eiginfjárhlutfall.
ÞG verktakar kærðu ákvörðunina til kærunefndar útboðsmála sem taldi verkkaupa hafa verið heimilt að synja umsókninni og meistarabréfinu sem síðar barst. Framlagning nýja bréfsins fæli í sér breytingu á grundvallarþætti umsóknarinnar sem væri líkleg til að raska samkeppni eða ýta undir mismunun.
Eigandi ÍAV gaf hins vegar eftir 3,3 ma.kr. skuld félagsins 15 dögum eftir að tilkynnt var um að tilboði þess hefði verið tekið. Tilboð ÍAV var 557 milljónum króna hærra en tilboð Ístaks. Fjármálaráðuneytið aflaði engra upplýsinga um fjárhagsstöðu ÍAV vegna útboðsins þrátt fyrir að veita vilyrði fyrir allt að 1.265 milljóna króna viðbótarhlutafé ríkisins í Þjóðarhöll ehf.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í viðtali að hann geti ekki séð að misbrestir hafi orðið í útboðsferlinu en kveðst vilja kynna sér málið betur áður en hann tjáir sig nánar um fjárhagslegt hæfi ÍAV. Hann telur ekki tilefni á þessu stigi til nánari athugunar á útboðsferlinu.
Þjóðarhöll
- Lágmarksreynsla stálvirkjameistara í útboði tvö ár
- Degi eftir höfnun skiluðu ÞG verktakar nýju meistarabréfi
- Skuld ÍAV var gefin eftir 15 dögum eftir val tilboðs
- Skuldaniðurfellingin nam 3,3 milljörðum króna
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗