Birta Líf: Ekkert skelfilegra en ástin

Birta Líf Ólafsdóttir var metnaðarfull á hrekkjavökunni í ár.

Birta Líf Ólafsdóttir var metnaðarfull á hrekkjavökunni í ár. Skjáskot/Instagram

Hrekkjavakan fór fram um helgina og kepptust íslenskar stjörnur um að klæða sig í búninga. Það fylgir því ákveðin frelsun að fara í búning og vera einhver annar en maður er, að minnsta kosti fann þúsundþjalasmiðurinn Unnur Borg Ólafsdóttir fyrir því. 

Hrekkjavaka!

Sunneva Eir Einarsdóttir, hlaðvarpsstjarna og áhrifavaldur, skellti sér í búning í tilefni hrekkjavökunnar. 

Ástin hræðir!

Hlaðvarpsstjarnan Birta Líf Ólafsdóttir var ástarguðinn á hrekkjavökunni enda ekkert sem hræðir meira að hennar mati en ástin. 

Trúlofaðar dúllur!

Elín Stefánsdóttir, förðunarfræðingur og áhrifavaldur, var á ferðalagi í Ástralíu. Í ferðalaginu fór hennar heittelskaði, Sindri Ingason, á skeljarnar.

Lagði bleyjuna á hilluna!

Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, er fyndinn skemmtikraftur og sparksérfræðingur. Hann hefur hingað til verið í dagvinnu á leikskóla en ákvað nýlega að hætta því. 

Lét ekki veðrið stoppa sig!

Samfélagsmiðlastjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir klæddi sig upp sem móðir drekanna og fór út í kuldann. 

Alltaf með hundinn!

Diljá Helgadóttir lögmaður býr og starfar í Lundúnum. Hún tekur hundinn sinn með sér hvert sem hún fer, líka þegar hún fer í sparigallann. 

Frelsuð!

Þúsundþjalasmiðurinn Unnur Borg Ólafsdóttir fór út á lífið í hrekkjavökubúningi og hefur aldrei verið hamingjusamari. 

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅