Hefja rannsókn eftir þátt um fjölkvæni
Sænsk yfirvöld hafa nú hafið rannsókn í kjölfar úttektar fréttaskýringarþáttarins Uppdrag granskning hjá sænska ríkissjónvarpinu SVT þar sem fram kemur að ímamar og trúarlegir ráðgjafar við moskur víðs vegar um Svíþjóð séu reiðubúnir að aðstoða gifta karla við að taka sér fleiri eiginkonur með trúarlegum hjónavígslum utan vébanda sænskra hjúskaparlaga.
Sumar mosknanna hafa á undanförnum árum hlotið opinbera styrki sem nema samanlagt milljónum sænskra króna.
Þóttust vera múslimar
Fréttamenn þáttarins þóttust vera múslimar og leituðu til trúarleiðtoga við 15 moskur í Svíþjóð og tóku samtölin upp með földum myndavélum.
Óskuðu þeir eftir aðstoð við að ganga að eiga aðra konu á þeim forsendum að þeim hefði ekki tekist að eignast börn með eiginkonum sínum.
Við sex mosknanna var beiðninni hafnað með vísan til sænskra laga og þess krafist að fyrir lægi staðfesting sænsku skattstofunnar á því að hjónavígsluskilyrði væru uppfyllt.
Við níu moskur buðust trúarleiðtogar aftur á móti annaðhvort til að annast hjónavígsluna sjálfir eða vísuðu fréttamönnunum á aðra sem gætu orðið við óskum þeirra.
Fjölkvæni er óheimilt í Svíþjóð og getur varðað allt að tveggja ára fangelsi. Trúarlegar hjónavígslur af því tagi sem fjallað er um í úttektinni hafa því ekki lagalegt gildi og njóta konurnar þar með ekki þeirra réttinda sem hjúskap fylgja.
Takmarka samskipti eiginkvenna og barna við Svía og gyðinga
Í úttektinni kom jafnframt í ljós að sumir trúarleiðtoganna ráðlögðu körlum að takmarka samskipti eiginkvenna sinna og barna við Svía og gyðinga.
Fréttamennirnir kváðust hafa áhyggjur af því að eiginkonur þeirra eða börn eyddu of miklum tíma með Svíum og gyðingum. Flestir trúarleiðtoganna töldu ekkert athugavert við slík samskipti.
Annan tón kvað við hjá sjeiknum Masud Mohamad, sem leiddi föstudagsbænir í Stenhagen-moskunni í Uppsölum og sat í stjórn stofnunarinnar sem stendur að baki moskunni.
Hann sagði að eiginkonan ætti ekki að eiga karlkyns vini og að vinkonur hennar yrðu að vera trúræknir múslimar. Brást hann enn harðar við þegar fréttamaðurinn nefndi að einn vinnufélaga hennar væri gyðingur.
Mohamad ráðlagði fréttamanninum jafnframt að sjá til þess að seinni eiginkona hans eignaðist hvert barnið á fætur öðru svo hún hefði engan tíma til að umgangast annað fólk.
Þá tók hann einnig vel í beiðni fréttamannsins um hjónavígslu og sagði að útvega mætti votta sem þekktu hann ekki. „Þú þarft ekki að nefna að þú hafir fundið mig,“ sagði hann jafnframt.
Mohamad hefur í kjölfar umfjöllunarinnar látið af störfum.
Beitti konuna þrýstingi
Við moskuna í Helsingborg var fréttamönnum vísað á sjeikinn Tarek Hussein, sem haldið hefur fyrirlestra um hjúskaparmál.
Tveir fréttamenn þáttarins þóttust vera hjón og á fundi þeirra með Hussein þrýsti hann á konuna að samþykkja að eiginmaður hennar tæki sér aðra eiginkonu, þótt það væri gegn vilja hennar.
Hussein sagði jafnframt sænska menningu einkennast af trúleysi og siðspillingu.
Forsvarsmenn moskunnar segja Hussein ekki vera starfsmann hennar og að þeir geti ekki borið ábyrgð á ummælum hans. Þeir muni þó endurskoða á hverja þeir vísa fólki.
Kvænist þeim konum sem ykkur geðjast að
Í annarri mosku í Uppsölum hitti fréttamaður þáttarins ímaminn Bashir Ahmed, sem taldi ekkert athugavert við að annast hjónavígsluna og vitnaði máli sínu til stuðnings í Kóraninn: „Kvænist þeim konum sem ykkur geðjast að.“
Yaser Abu Jheisheh, formaður moskunnar, brást harkalega við þegar honum var sýnd upptakan af samtalinu. „Þetta særir hjarta mitt,“ sagði hann.
Boðaði hann til neyðarfundar sama kvöld og ákvað stjórn moskunnar á fundinum að reka ímaminn.
Að sögn Abu Jheisheh stefnir framferði ímamsins því samstarfi sem moskan hefur byggt upp í samfélaginu á undanförnum árum í hættu.
Dró fljótt í land
Við moskuna í Örebro var fréttamanni vísað á trúarlega ráðgjafann Abu Aous, sem kvaðst í símtali geta annast hjónavígslu utan moskunnar gegn greiðslu upp á tvö þúsund sænskar krónur, tæpar 25 þúsund íslenskar krónur.
Daginn eftir sendi hann fréttamanninum skilaboð þess efnis að um misskilning hefði verið að ræða. Þegar fréttamaðurinn heimsótti moskuna hafnaði ímam hennar beiðninni. Aous hefur nú verið settur í starfsbann.
Við fjórar moskur til viðbótar var fréttamönnunum tjáð að ekki væri hægt að annast hjónavígsluna innan moskunnar en þeim vísað á aðra ímama. Einn þeirra kvaðst geta annast vígsluna gegn greiðslu upp á eitt þúsund sænskar krónur.
Samstarfinu slitið
Í Halmstad féllst ímaminn Mouad Zamzam einnig á að annast hjónavígslu. Þar komu jafnframt fram ummæli um takmörkun á samskiptum við Svía og gyðinga.
Zamzam lét af störfum í sumar. Stjórn moskunnar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún tekur afstöðu gegn ummælunum.
„Samstarfinu var slitið eftir að upplýsingar komu fram um ummæli og athafnir sem samræmdust ekki leiðbeiningum okkar og gildum. Stjórnin stendur ekki á bak við þessi ummæli,“ segir í yfirlýsingunni.
Bæjarráð Halmstad samþykkti í dag að leggja til að leigusamningi við félagið sem rekur moskuna yrði sagt upp, en húsnæði hennar er í eigu sveitarfélagsins.
Stefan Pålsson, formaður bæjarráðsins, segir ýmis alvarleg atvik hafa komið upp á undanförnum árum og að með þeim upplýsingum sem fram komu í úttekt SVT hafi verið farið yfir strikið.
Fá styrki upp á rúmar 800 milljónir
Félögin sem reka moskurnar í Helsingborg, Gautaborg, Örebro og Rinkeby auk stærri moskunnar í Uppsölum fengu samanlagt tæpar 2,4 milljónir sænskra króna í ríkisstyrki á árunum 2023 til 2025.
Þá er Stenhagen-moskan í Uppsölum á meðal 17 félaga sem skipta með sér sex milljónum sænskra króna í ríkisstyrki í ár. Ekki liggur fyrir hversu mikið rennur til moskunnar.
Trúfélög í Svíþjóð fengu alls 66 milljónir sænskra króna, rúmar 800 milljónir íslenskra króna, í styrki frá sænsku æskulýðs- og félagasamtakastofnuninni í ár.
Styrkveitingar sæta skilyrðum
Skilyrði styrkveitinganna er að trúfélögin og fulltrúar þeirra uppfylli tiltekin lýðræðisskilyrði. Þeim er meðal annars óheimilt að beita ofbeldi, nauðung eða hótunum, brjóta gegn grundvallarfrelsi og mannréttindum eða þeirri grundvallarreglu að allir menn séu jafn mikils virði eða mismuna einstaklingum og hópum.
Magnus Jägerskog forstjóri stofnunarinnar segir ljóst að þeir fulltrúar mosknanna sem um ræðir hafi brotið gegn skilyrðunum. Hefur stofnunin nú boðað forsvarsmenn viðkomandi trúfélaga á sinn fund til að krefjast skýringa.
Uppdrag granskning fjallaði fyrst um það árið 2012 að ímamar í Svíþjóð legðu blessun sína yfir fjölkvæni. Þrátt fyrir það hefur opinbert fé áfram runnið til mosknanna sem um ræðir.
„Það er ein af þeim spurningum sem við spyrjum okkur. Að þetta hafi gerst ítrekað og að svipuð mál komi upp í ólíkum úttektum, þrátt fyrir að mörg ár séu liðin. Það gerir málið enn alvarlegra,“ segir Jägerskog.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗